Skoðun

Ferðaþjónustufyrirtæki þurfa að átta sig á ábyrgð sinni

Börkur Hrólfsson skrifar

Það vekur mann til umhugsunar hvað ferðaskrifstofur eru tregar til að hætta við ferðir, ef veður og aðrar aðstæður eru slæmar.

Fyrir nokkrum árum fór ein ferðaskrifstofa af stað áleiðis ínní Landmannalaugar, jafnvel þótt aðrir hefðu hætt við ferð vegna veðurs og slæmrar færðar. Enduðu útí Jökulkvísl, á tveggja metra dýpi. Fimm manns komust á topp bílsins, og héngu þar í nokkra klukkutíma, köld og blaut í kolvitlausu veðri. Þyrlusveit LHG setti síg í stórkostlega lífshættu til að komast til þeirra og bjarga þeim af toppinum. Annars hefði þetta fólk farist. Þetta sama fyrirtæki fór í Landmannalaugaferð í afar slæmu færi, að vetri til. Og varð eldsneytislaust, og kallaði til Flugbjörgunarsveitina á Hellu með snjóbíl, til að koma eldsneyti til þeirra.

Leiðsögumaður fór með fólk í göngu á Eyjafjallajökul, án þess að athuga hvort þau væru búin til þess. Þyrlan kom þeim til bjargar.

Ferðaþjónustu fyrirtæki fór fyrir gönguhópi í gönguferð um Vatnajökul, og þurfti að kalla til hjálparsveit til bjargar.

Þá eru fjölmörg tilfelli um að rútufyrirtæki hafa farið útí kolvitlausa spá, og jafnvel eftir að veður var skollið á. Man einhver eftir aðfangadag jóla, fyrir nokkrum árum, þegar 3 smárútur lentu í hrakningum í Öræfum. Farið var af stað jafnvel þótt það væri búið að hamra á viðvörunum í marga daga. Þar þurftu björgunarsveita menn á brynvörðum dreka að koma ferðafólki til bjargar.

Bara á síðasta ári urðu fjölmörg óhöpp þegar rútur af ýmsum stærðum fuku útaf veginum, þótt aðvaranir hefðu löngu verið gefnar út.

T.d. stór 70 manna rúta hálftóm fauk útaf undir Eyjafjöllum á þekktu hamfara svæði, þegar allir aðrir annað hvort hættu við ferð, eða biðu veðrið af sér. Eins fauk önnur 70 manna rúta útaf undir Hafnarfjalli, þegar aðrir biðu af sér veðrið í Borgarnesi.

Þá eru ónefnd mörg óhöpp, þegar óreyndir leiðsögumenn og bílstjórar á súperjeppum eru sendir í ferðir, og reynsluleysi þeirra kemur fólki í vandræði og veldur jafnvel slysum. Ég man í augnablikinu eftir tveimur óhöppum, þegar jepparnir kollsteyptust fram af brúnum, og mildi að ekki varð fólki að fjörtjóni.

Ég held að ferðaþjónustu fyrirtæki þurfi að fara að átta sig á ábyrgð sinni.

Nýlegur dómur vegna slyss í Reynisfjöru, sýnir að fyrirtæki og fararstjórar verða í auknum mæli dregin til ábyrgðar.

Höfundur er leiðsögumaður.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×