Tólf hægriöfgamenn sem hugðu á árásir handteknir í Þýskalandi Kjartan Kjartansson skrifar 16. febrúar 2020 14:54 Einn mannanna leiddur út úr hæstarétti í Karlsruhe í gær. AP/Uli Deck
Þýska lögreglan handtók tólf grunaða hægriöfgamenn á föstudag sem eru grunaðir um að hafa lagt á ráðin um samhæfðar árásir til að valda pólitískri ringulreið. Árásirnar eru sagðar hafa átt að beinast að stjórnmálamönnum, hælisleitendum og múslimum. Reuters-fréttastofan segir að fjórir mannanna séu grunaðir um að hafa stofnað hægriöfgahryðjuverkasamtök í september en hinir átta um að hafa fjármagnað starfsemina. Dómari úrskurðaði mennina, sem voru handteknir í sex sambandslöndum, í gæsluvarðhald í gær. Mennirnir eru á aldrinum tuttugu til fimmtíu ára en samtökin sem þeir stofnuðu nefnast „Harðkjarninn“ (þ. Der harte Kern). Þeir kynntust í gegnum samskiptamiðilinn Whatsapp sem er í eigu samfélagsmiðlarisans Facebook. Yfirvöld höfðu fylgst með hópnum frá því síðla sumars í fyrra. Lögreglumenn eru sagðir hafa fundið efni sem hefði verið hægt að nota til að búa til sprengjur í húsleitum sem tengdust handtökunum. Stuðningur við hægriöfgahópa hefur farið vaxandi í Þýskalandi undanfarin misseri, sérstaklega í því sem var áður Austur-Þýskaland.
Flóttamenn Þýskaland Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Erfitt að útskýra fyrir þriggja ára að það verði ekkert af afmæli í leikskólanum Innlent Misbýður ummæli um samhljóm stefnu sinnar og Breiviks Innlent Telja sig hafa fundið vísbendingu í máli D.B. Cooper Erlent Kostuleg kosningabarátta: Óvæntar uppákomur og skrautlegir skandalar Innlent Segir það mjög góða tilfinningu að skrifa undir nýjan kjarasamning Innlent Haldlögðu metmagn af kókaíni í sameiginlegri aðgerð 62 ríkja Erlent Hafa gefið út 99 leyfi til dýratilrauna síðustu fimm ár Innlent „Verðum að bregðast við áður en það verður of seint“ Innlent Læknar undirrita nýjan kjarasamning Innlent Fleiri fréttir Segir skemmdarverk Rússa í Evrópu geta leitt til átaka Haldlögðu metmagn af kókaíni í sameiginlegri aðgerð 62 ríkja Rússar gera umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu Íranir hóta því að koma sér upp kjarnorkuvopnum Telja sig hafa fundið vísbendingu í máli D.B. Cooper Forsetaefni í Georgíu spilaði áður fyrir Manchester City Hinir 50 hafi allir verið „herra meðal-Jón“ Fangaskipti milli Bandaríkjanna og Kína Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna Sendir Trump tóninn og hótar eigin tollum Lögreglumaður fundinn sekur um að bana 95 ára konu með rafbyssu Danska leiðin vekur lukku meðal bakhjarla Úkraínu Vopnahlé tók gildi í nótt og fólk farið að snúa aftur heim Vopnahlé milli Ísraels og Líbanon í höfn Þjóðhátíð í Nuuk vegna opnunar flugvallarins SpaceX skýtur kjarnorkuknúnum dróna út í geim Sprengdu tuttugu hús á tveimur mínútum Vildi pening í skiptum fyrir falleg orð í eyru Trumps Metárás á innviði með 188 drónum og fjórum skotflaugum Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Ítrekar hótanir um að hækka tolla á Kína, Mexíkó og Kanada Saksóknarar vilja Pelicot í 20 ára fangelsi Annarri ákærunni formlega vísað frá Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Saksóknari fellur frá ákærum á hendur Trump Ísrael og Hezbollah sögð við það að gera vopnahlé Ólöglegir og löglegir innflytjendur afar uggandi um framtíð sína Óvæntar niðurstöður í fyrri umferð kosninga í Rúmeníu Scholz verður kanslaraefni Jafnaðarmanna Konur í mestri hættu innan veggja heimilisins Sjá meira