Skoðun

Stöð 2 málsvarar ofbeldis?

Kristrún Heimisdóttir og hópur kvenna skrifar

Þann 24. febrúar birtist auglýsing á Facebook-síðu þáttarins Ísland í dag, en þátturinn er fastur dagskrárliður eftir fréttir á Stöð 2, á besta sýningartíma. Samkvæmt auglýsingunni var fyrirhugað að birta einhliða drottningarviðtal við Kolbrúnu Önnu Jónsdóttur þar sem hún segir frá atburðum sem áttu sér stað á heimili hennar um mitt sumar 2016.

Forsaga máls Stöðvar 2 gagnvart þessum atburðum hefst fyrr, eða þann 20. febrúar 2017, þar sem Ísland í dag fjallaði þá einhliða um sögu eiginmanns Kolbrúnar; Ólafs Hand þar sem hann segist hafa barist fyrir dóttur sinni í 10 ár. Viðtalið var samfelld árás á barn Ólafs og barnsmóður. Áhorfendur fengu engar upplýsingar um raunverulegt tilefni leikritsins sem Stöð 2 setti á svið þennan dag. Á þessu tímabili stóð yfir lögreglurannsókn á alvarlegu ofbeldisverki þar sem Hand hjónin voru ákærð. Þess í stað var Ólafur sýndur almenningi sem grátandi tálmaður faðir á sjónvarpsskjánum með fréttamann Stöðvar 2 sem klappstýru.

Ólafur Hand hefur aldrei á ævi barnsins sætt tálmunum, þvert á móti haft reglulega umgengi við barnið, þar til barnið sjálft varð vitni að alvarlegri og refsiverðri líkamsárás Ólafs á móður þess. Í þætti Ísland í dag, þann 20. febrúar 2017, fengu áhorfendur ekkert að vita um raunverulega aðkomu lögreglu að málinu. Í framhaldinu kom Ólafur Hand margoft fram í fjölmiðlum þar sem hann segist vera tálmaður faðir. Hann veigraði ekki fyrir sér að óvirða í sífellu friðhelgi barns síns og vega að barnsmóður sinni.

Óvirðing Stöðvar 2 við alla aðra aðila málsins fyrir utan Hand-hjónin er takmarkalaus. Siðanefnd Blaðamannafélagsins ávítti Stöð 2 fyrir alvarlega óvirðingu við barnsmóðurina og fjölskyldu barnsins. Þau voru þolendur opinberar umfjöllunar um alvarlegt ofbeldisverk sem var í ákæruferli. Bæði Kolbrún Jónsdóttir og Ólafur Hand voru ákærð fyrir atburðinn sem áætlað var að fjalla einhliða um í þætti Íslands í dag en hefur verið frestað að sinni.

Ólafur Hand var dæmdur sekur 2018 vegna kyrkingartaks og brots á barnaverndarlögum, þar sem líkamsárás gegn barnsmóður Ólafs var framin að barni þeirra ásjáandi. 

Ólafur hefur áfrýjað dómnum til Landsréttar og málið er nú í áfrýjunarferli. Þrátt fyrir að málið sé statt á svo viðkvæmum stað gefur Kolbrún Jónsdóttir eiginkona Ólafs út fría hljóðbók sem öllum er aðgengileg. Þungamiðja bókarinnar eru atburðirnir sem gerðust 2016 út frá hennar sjónarhorni. Af því tilefni endurtekur Stöð 2 gerð drottningarviðtals, nú við eiginkonu Ólafs sem átti að birtast 24. febrúar s.l.

Þrátt fyrir að sýningu þess hafi verið frestað var tilgangurinn enn og aftur að birta einhliða frásögn Kolbrúnar Jónsdóttur, augljóslega til að hafa áhrif á lögmæt yfirvöld í landinu, með PR aðgerðum sem eingöngu eru á færi sterkefnaðs fólks.

Enn og aftur ætlaði Stöð 2 að birta viðtal án þess að virða aðra aðila málsins viðlits og þeir fréttu eingöngu af í gegnum auglýsingu á Facebook-síðu þáttarins Ísland í dag. 

Enn og aftur fær saga þeirra hjóna gagnrýnislausan hljómgrunn þrátt fyrir að þeirra hlið hafi verið hafnað af öllum rannsakendum málsins. 

Að fjölmiðill, með sitt vald, taki jafn skýra afstöðu í jafn viðkvæmu máli er einsdæmi. Stöð 2 veitir hjónunum sérmeðferð sem varla nokkurt annað sakað fólk hefur áður fengið. 

Með framgöngu sinni hefur Stöð 2 látið nota sig sem málsvarnartæki og ímyndasmið einstaklinga sem enga ábyrgð vilja axla á gjörðum og sem lögregla, ríkissaksóknari og Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að niðurstöðu um að hafi framið alvarlegt saknæmt athæfi og brot gegn barni.

Skuld Stöðvar 2 við sannleikann og réttlætið er mikil, ekki síst gagnvart barninu sem er hið eiginlega fórnarlamb. Ekkert af því sem Stöð 2 hefur borið fram til þessa átti neitt erindi í fjölmiðla. Athygli hefur vakið að barnsmóðirin í málinu hefur engan þátt tekið í að fjölmiðlavæða málið heldur lagt allt sitt undir í að vernda barnið fyrir óvægnu áreiti sem óhjákvæmilega hefur fylgt bæði því ofbeldi sem móðir þess var beitt að því ásjáandi og þeirri opinberu einhliða umfjöllun sem hjónin hafa markvisst beitt sér fyrir. 

Í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem hefur verið lögfestur á Íslandi segir m.a að „eigi megi láta barn sæta gerræðislegum og ólögmætum afskiptum af einkalífi þess, fjölskyldu, heimili eða bréfum, né ólögmætri árás á sæmd þess að mannorð“. Stöð 2 hefur með fulltingi hjónanna brotið gegn grundvallarreglum Barnasáttmálans, ekki bara einu sinni, heldur ætlar sér að halda því áfram.

Fjölmiðlaherferð Ólafs Hand og Kolbrúnar Jónsdóttur á samfélagsmiðlum, sjónvarpi, útvarpi og blöðum hefur frá byrjun verið óvægin, meiðandi og skaðleg fyrir barnið – sem þau ættu þó helst að vernda. Í bók Kolbrúnar Jónsdóttur „Ákærð“ er reynt að sannfæra samfélagið um að barnið ljúgi um atburði sem það var vitni af. Markmiðið er að afneita með öllu að barnið viti sjálft hvernig og hversu ógnvænlega að öryggi þess var vegið. Friðhelgi einkalífs barnsins hefur verið alvarlega rofin frá því að fjölmiðlaherferðin hófst 2017 og enn halda sömu aðilar áfram með ásókn (ofsólnum?) í frétt. Í bókinni er þess jafnframt getið hversu ósanngjarnt er að Ólafur Hand borgi tvöfalt meðlag í ljósi þess hversu mikið þau eru með barnið. Er það algjörlega á skjön við tálmunarfrásagnir Ólafs Hand sem hann hefur ítrekað haldið fram.

Nú er mál að linni. Stöð 2 og öllum fjölmiðlum ber að virða leiðbeiningareglur Umboðsmanns barna og fleiri samtaka sem láta sig heill barna varða. Þessum leiðbeiningum eru ætlað að tryggja vandaða umfjöllun um börn og virðingu fyrir einkalífi þeirra. Hneykslið sem drottningarviðtal Stöðvar 2 við Ólaf Hand var eitt af því sem leiddi til að þessar reglur voru gefnar út. 

Stöð 2 ætlar með framgöngu sinni enn og aftur að óvirða þessar reglur og bæta um betur með því að óvirða einnig siðareglur eigin fréttastöðvar. Er það gert í þágu málstaðar föður sem dæmdur er í skilorðsbundið fangelsi og brot á barnaverndarlögum. 

Rannsóknaraðilar málsins; lögregla, ríkissaksóknari og Héraðsdómur Reykjavíkur hafa samkvæmt landslögum látið verkin tala og ekki brugðist barninu. Ólafur Hand og Kolbrún Jónsdóttir hafa á öllum stigum sakamálsins fengið tækifæri til að verja sig með sinni sögu og rökum og gengið lengra með einhliða frásögnum í fjölmiðlum af málinu. Það er í dómssal sem málflutningur þeirra hefur alla tíð átt heima, ekki á sjónvarpskjá landsmanna með fréttamenn í hlutverki klappstýra. 

Verndum börn! Hættu Stöð 2!

Stuðningshópur ólögráða barns

Kristrún Heimisdóttir

Dögg Pálsdóttir

Anna Bentína Hermansen

Vigdís Grímsdóttir

María Guðmundsdóttir

Filip Woolford

Elfa Kristín Jónsdóttir

Sigurlaug Lára Ingimundardóttir

Ása Lind Finnbogadóttir

Hildur Björk Hörpudóttir

Steinunn Hákonardóttir

Margrét Baldursdóttir

Oddrún Ólafsdóttir

Erla Einarsdóttir

Hildur Guðbjörnsdóttir

Arna Crowley Rúnars

Helga Dís Ísfold Álfheiðardóttir Sigurðardóttir

Harpa Sif Margrétar Eyjólfsdóttir

Margrét Perla Kolka Leifsdóttir

Agnes Bára

Þórhildur Löve

Eva Dögg Jóhannsdóttir

Anna Soffía Víkingsdóttir

Kristín Erla Kristjánsdóttir

Helga Rósa Atladóttir

Júlía Garðarsdóttir

Hafdís Ástþórsdóttir

Sigríður Ásta Árnadóttir

Inga Rósa Vatnsdal

Elísabet Ýr Atladóttir

Stefanía Hrund Guðmundsdóttir

Hrafnhildur Snæbjörnsdóttir

Sólrún Gunnarsdóttir

Sandra Rut Skúladóttir

Gerður Ólafsdóttir

Katrín Harðardóttir

Steinunn Diljá Högnadóttir

Sigrún Sif Jóelsdóttir

Katrín Ómarsdóttir

Ragna Björk Ragnarsdóttir

Elísabet María Guðmundsdóttir Valdested

Ragnheiður Inga Sigurgeirsdóttir

Vibeka Svala Kristinsdóttir

Ástrós Anna

Ninna Karla Katrínardóttir

Inga María Vilhjálmsdóttir

Eija Jansdotter

Bryndís Inga Pálsdóttir

Þórdís Anna

Lilja Dröfn Dagbjartsdóttir

Kolbrún Dögg Arnardóttir

Guðrún Jónsdóttir

Olga Ólafsdóttir

Birgitta Sigurðardóttir

Marta Brancaccia

Fríða Bragadóttir

Helga Hrönn Norðfjörð Þórðardóttir

Fríða Björnsdóttir

Anna Sigríður Jónsdóttir

Hrafnhildur Alfreðsdóttir

Kristín Johansen

Rakel Jónsdóttir

Kartín Ólafsdóttir

Gabríella Bryndís Ernudóttir

Ragnheiður S. Árnadóttir

Hrafnhildur Hauksdóttir

Halldóra Magný Baldursdóttir

Kristín I. Pálsdóttir

Linda Björk Einarsdóttir

Fjóla Heiðdal

Heiða Sigurðardóttir

Freydís Dögg Steindórsdóttir

Guðrún Línberg Guðjónsdóttir

Ingibjörg Eyfjörð Hólm

Elsa Hrönn

Vigdís Þórmóðsdóttir

Hjördís Líney Aðalsteinsdóttir

María Hjálmtýsdóttir

María Björk Helgadóttir

Sigríður Didda Aradóttir

Helga Bjarnadóttir

Sigríður Árnadóttir

Anna Katrín Snorradóttir




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×