Lífið

Fresta tónleikum Andrea Bocelli fram á næsta ár

Stefán Árni Pálsson skrifar
Andrea Bocelli kemur til landsins næsta vor.
Andrea Bocelli kemur til landsins næsta vor. vísir/getty

Tónleikarnir með Andrea Bocelli sem áttu að fara fram 3. október í Kórnum hafa verið færðir til laugardagsins 10. apríl 2021, vegna útbreiðslu kórónuveirunnar sem veldur COVID-19 sjúkdómnum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Senu. Þar segir að allir miðar gildi áfram á tónleikana 10. apríl og ello þurfi að sækja nýja miða.

„Ef þessi nýja dagsetning hentar ekki þá eiga miðahafar rétt á fullri endurgreiðslu. Til þess að fá endurgreitt þarf að fara fram á það við miðasölu með því að senda tölvupóst á [email protected] innan 14 daga, eða fyrir 23. september,“ segir í tilkynningunni. Þetta er í annað sinn sem fresta hefur þurfti tónleikunum með Bocelli sem fara fram í Kórnum í Kópavoginum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.