Lífið

Kelly Clarkson opnar sig um skilnaðinn: „Set alltaf börnin mín í forgang“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kelly Clarkson fór af stað með aðra þáttaröðina af spjallþætti sínum í upphafi vikunnar. 
Kelly Clarkson fór af stað með aðra þáttaröðina af spjallþætti sínum í upphafi vikunnar. 

Bandaríska söngkonan Kelly Clarkson byrjaði með aðra seríu af spjallþætti sínum The Kelly Clarkson Show í byrjun vikunnar.

Í sumar sótti hún um skilnað við eiginmann sinn, Brandon Blackstock og opnaði hún sig um skilnaðinn í upphafsræðu sinni í fyrsta þættinum.

„Það sem ég er að takast á við er erfitt og kemur ekki bara niður á mér heldur einnig börnunum okkar. Skilnaður er aldrei auðveldur. Við komum bæði úr skilnaðar fjölskyldum og vitum að það er nauðsynlegt að vernda börnin okkar,“ segir Kelly en saman eiga þau tvö börn. Í skilnaðarpappírunum sem Clarkson lagði fram segir hún ástæðu skilnaðarins vera ágreiningsmál sem ekki væri unnt að leysa úr. Eins óskaði Clarkson eftir sameiginlegu forræði tveggja barna þeirra hjóna.

Þá krefst Clarkson þess að kaupmála sem gerður var í upphafi hjónabandsins verði framfylgt. Clarkson hefur einnig óskað eftir því að fá löglegu ættarnafni sínu breytt aftur yfir í Clarkson, en hún tók upp nafnið Blackstock við giftingu. Þrátt fyrir það hefur hún áfram verið þekkt undir Clarkson-nafninu og notað það iðulega.

„Ég er vanalega mjög opin manneskja og tala um allt en varðandi þetta mál mun það mest megnis verða innan fjölskyldunnar, því ég set alltaf börnin mín í forgang. Það eru margir að spyrja mig hvernig mér líður og ég hef það bara ágætt. Ég mun samt sem áður ekki tala mikið um þetta en mögulega mun ég semja tónlist í kringum þessa lífreynslu.“

Clarkson og Blackstock gengu í það heilaga árið 2013. Þau eiga saman tvö börn, fimm ára dótturina River og fjögurra ára soninn Remington.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.