Skoðun

Afkomutengt veiðileyfagjald er vond hugmynd – Þrjár ástæður

Kjartan Jónsson skrifar

Hugmyndin um afkomutengt veiðileyfagjald, eins og nú tíðkast í íslenskum sjávarútvegi, virðist við fyrstu sýn fela í sér einhvers konar sanngirni. Að greinin greiði í samræmi við afkomu sína hverju sinni. Þegar nánar er að gáð kemur í ljós hversu meingallað þetta fyrirkomulag er. Hér eru þrjár ástæður fyrir því.

Tveir heimar í greininni

Skipta má útgerðinni gróflega í tvo hópa sem búa við gjörólíkan veruleika. Annar hópurinn eru lítil og meðalstór fyrirtæki sem stofnuð voru eftir að framsalinu var komið á (1991) og hafa þurft að kaupa veiðiheimildir með tilheyrandi skuldsetningu og fjármagnskostnaði.

Hinn hópurinn eru stór fyrirtæki sem fengu tugþúsundir tonna af kvóta afhend árið 1991 eða keyptu fyrir lítið á fyrstu árunum þar á eftir og hafa átt síðan. Í þeim síðarnefna eru líka fyrirtæki í uppsjávarveiðum sem veiða síld, loðnu og makríl, en þær aflaheimildir hafa lítið skipt um hendur.

Þegar síðan birtar eru meðaltalstölur um afkomu þessara hópa eru þær því alltaf stórfyrirtækjunum í hag. Erfið afkoma fyrri hópsins verður til þess að veiðileyfagjöld lækka og verður í raun mun lægri en stærri fyrirtækin eru fær um að greiða.

Bókhaldsbrellur

Íslenskur sjávarútvegur er í heildina séð ógagnsær, þar sem sömu fyrirtæki eiga útgerð, vinnslu og markaðsfyrirtæki sem eru gjarnan erlendis. Það eru auðvitað helst áðurnefnd stórfyrirtæki sem geta þannig fært til hagnað á milli veiða, vinnslu og markaðsfyrirtækja.

Nú þegar er til staðar hvati til að færa hagnað frá veiðum til vinnslu, því tekjur sjómanna eru tengdar aflaverðmæti. Þá er fyrirtækjunum einnig hagur í að taka út hagnað í erlendu markaðsfyrirtæki þar sem er hagkvæmara skattaumhverfi.

Með afkomutengdum veiðileyfagjöldum er hvatinn enn meiri í þá átt að færa hagnað frá útgerðinni – á meðan minnsti hluti þess afla sem veiddur er fer á markað munu þau komast upp með það að einhverju marki.

Áhrif virks markaðar með veiðiheimildir

Áhrif vaxtalækkana á fasteignalán eru þau að fasteignaverð hækkar með tímanum, þar sem lægri vaxtakostnaður þýðir að fólk getur tekið stærri lán og greitt meira. Það er í samræmi við eðli virks markaðar. Að sama skapi veldur lækkun veiðigjalda hækkun á markaðsverði á veiðiheimildum með tíð og tíma. Þarna er um að ræða markað með nokkur hundruð fyrirtækjum, aðallega litlum og meðalstórum. Þannig étur hækkandi fjármagnskostnaður með tíð og tíma upp þann ávinning sem þessi smærri fyrirtæki höfðu af lækkun veiðileyfagjalda um leið og nýliðun verður í greininni.

Jafnræði og gagnsæi

Sjávarútvegur á Íslandi hefur áratugum saman komið sér hjá því að fullnægja nútímakröfum um jafnræði og gagnsæi, sem flest önnur svið íslensks atvinnurekstrar og stjórnsýslu hafa þurft að gangast undir. Afkomutengd veiðileyfagjöld eru ekkert annað en bútasaumur á meingölluðu kerfi og löngu tímabært að setja upp kerfi sem tryggir jafnræði og gagnsæi.

Höfundur er formaður Okkar auðlindar og framkvæmdastjóri Múltikúlti íslensku




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×