Lífið

Hefur greinst með eitla­krabba­mein

Atli Ísleifsson skrifar
Jeff Bridges vann til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt í Crazy Heart árið 2010.
Jeff Bridges vann til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt í Crazy Heart árið 2010. Getty

Bandaríski stórleikarinn Jeff Bridges hefur greint frá því að hann hafi greinst með eitlakrabbamein. Hann segir horfur á bata þó vera góðar.

Bridges greindi frá þessu á Twitter-síðu sinni í gærkvöldi. Bridges segist þar vita og viðurkenna að um „alvarlegan sjúkdóm“ væri að ræða og að hann sé í þann mund að hefja meðferð.

Eitlakrabbamein er tegund krabbameins sem ræðst á eitlakerfið sem er hluti af varnarkerfi líkamans.

Hinn sjötugi Bridges er líklega þekktastur fyrir hlutverk sitt sem The Dude í myndinni The Big Lebowski, en hann vann til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt í myndinni Crazy Heart árið 2010. 

Hann hefur einnig leikið í myndum á borð við The Last Picture Show, The Contender, The Fisher King og True Grit.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.