Hani banaði lögreglumanni á Filippseyjum Atli Ísleifsson skrifar 28. október 2020 09:55 Hanaat er vinsælt á Filippseyjum þar sem margir koma jafnan saman til að veðja á niðurstöðu slagsmála hananna. Getty
Lögreglumaður á Filippseyjum er látinn eftir að hani, sem þjálfaður hafði verið upp til að stunda hanaat, réðst á hann við húsleit lögreglu á ólöglegum hanaatsstað í héraðinu Norður-Samar. BBC segir frá því að lögreglumaðurinn hafi verið stunginn með stálblaði sem fest er á fót hana sem notaðir eru í hanaati. Var hann stunginn í lærið, hæfði slagæð, sem varð til þess að lögreglumanninum blæddi út. Lögreglumaðurinn var fluttur á sjúkrahús þar sem hann var úrskurðaður látinn. Hanaat hefur verið bannað á Filippseyjum eftir að heimsfaraldur kórónuveirunnar skall á. Undir venjulegum kringumstæðum er hanaat heimilað á ákveðnum tímum en starfsemin er leyfisskyld. Lögreglustjórinn Arnel Apud segir slysið „óheppilegt“ sem ekki sé hægt að skýra með fullu. Alls voru þrír handteknir í tengslum við málið, en þriggja manna er enn leitað. Hanaat er vinsælt á Filippseyjum þar sem margir koma jafnan saman til að veðja á niðurstöðu slagsmála hananna.
Filippseyjar Dýr Mest lesið „Ég mun deyja á þessari hæð“ Innlent Fundu gríðarlegt magn fíkniefna í skrifstofuhúsnæði í Kópavogi Innlent Svona voru kappræður flokksleiðtoganna Innlent Glæný könnun Maskínu: Fylgi Framsóknar og Flokks fólksins á uppleið Innlent Misbýður ummæli um samhljóm stefnu sinnar og Breiviks Innlent Erfitt að útskýra fyrir þriggja ára að það verði ekkert af afmæli í leikskólanum Innlent Opnunin á Blönduhlíð var engin opnun Innlent Sauð upp úr í morgunumferðinni Innlent Danska leiðin vekur lukku meðal bakhjarla Úkraínu Erlent Erlendir fjárfestar buðu fúlgur fjár Innlent Fleiri fréttir Grænlendingar fagna nýjum alþjóðaflugvelli Segja að endurtaka verði kosningarnar umdeildu í Georgíu Sækja óvænt og hratt að Aleppo Segir skemmdarverk Rússa í Evrópu geta leitt til átaka Haldlögðu metmagn af kókaíni í sameiginlegri aðgerð 62 ríkja Rússar gera umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu Íranir hóta því að koma sér upp kjarnorkuvopnum Telja sig hafa fundið vísbendingu í máli D.B. Cooper Forsetaefni í Georgíu spilaði áður fyrir Manchester City Hinir 50 hafi allir verið „herra meðal-Jón“ Fangaskipti milli Bandaríkjanna og Kína Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna Sendir Trump tóninn og hótar eigin tollum Lögreglumaður fundinn sekur um að bana 95 ára konu með rafbyssu Danska leiðin vekur lukku meðal bakhjarla Úkraínu Vopnahlé tók gildi í nótt og fólk farið að snúa aftur heim Vopnahlé milli Ísraels og Líbanon í höfn Þjóðhátíð í Nuuk vegna opnunar flugvallarins SpaceX skýtur kjarnorkuknúnum dróna út í geim Sprengdu tuttugu hús á tveimur mínútum Vildi pening í skiptum fyrir falleg orð í eyru Trumps Metárás á innviði með 188 drónum og fjórum skotflaugum Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Ítrekar hótanir um að hækka tolla á Kína, Mexíkó og Kanada Saksóknarar vilja Pelicot í 20 ára fangelsi Annarri ákærunni formlega vísað frá Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Saksóknari fellur frá ákærum á hendur Trump Ísrael og Hezbollah sögð við það að gera vopnahlé Ólöglegir og löglegir innflytjendur afar uggandi um framtíð sína Sjá meira