Skoðun

Horfum á heildar­myndina

Guðrún Hildur Ragnarsdóttir skrifar

Mikið hefur verið ritað og talað um breytt landslag í ferðaþjónustu upp á síðkastið, bæði hvaða leiðir hægt er að fara til að sporna við kostnaði og mögulegu gjaldþroti, og einnig hvað við getum gert til þess að auka samkeppnishæfni okkar og sýnileika úti í hinum stóra heimi. Það er eðlilegt og sjálfsagt að eigendur ferðaþjónustufyrirtækja leiti allra leiða til að komast af í þessu árferði og er niðurskurður oftar en ekki ein af fáum eða jafnvel eina lausnin, hvort sem það sé gert í gegnum starfsmannahald eða fasta og breytilega kostnaðarliði. Það er erfitt að komast hjá föstum kostnaði og því er saxað á þá breytilegu sem markaðssetning fellur meðal annars undir. Markaðssetning til erlendra ferðamanna getur verið mjög kostnaðarsöm og krefst mikillar vinnu og það er því ekki á færi allra að ráða utanaðkomandi aðila til að sinna því verkefni. Hættulegt er þó að líta framhjá gríðarlegu vægi markaðssetningar á komandi misserum þar sem nauðsynlegt er að byggja okkur örugglega upp aftur eftir þann samdrátt sem hefur átt sér stað. En í hverju felst markaðssetning og hvaða tól getum við notað til þess að gera okkur sýnileg á innlendum sem og erlendum markaði?

Leiðin liggur í loftinu

Við viljum geta boðið upp á okkar þjónustu á réttu verði fyrir rétta gestinn á réttum tíma. Í markaðssetningu í dag eru nokkrar grunnstoðir og mikilvægt er að kynna sér vel hvaða leiðir hægt er að fara. Sem dæmi má nefna samfélagsmiðla, líkt og Instagram og Facebook, net- og fréttamiðla, eða samstarfsaðila, eins og ferðaskrifstofur og bókunarsíður. Margir hafa nýtt sér Instagram og Facebook til að auglýsa sig, sérstaklega í ár og þá helst á innanlandsmarkaði. Annað sem ekki er síður mikilvægt þegar kemur að markaðssetningu er heimasíða með uppfærðum upplýsingum og nýlegum myndum til að auka traust sem stuðlar að jákvæðum áhrifum á beinar bókanir. Það er þó ekki nóg að vinna með innlenda markaðinn heldur þarf einnig að leggja áherslu á ytri markaðssetningu í gegnum samstarfsaðila. Langflestir ferðaþjónustuaðilar nýta sér samstarf í gegnum ferðaskrifstofur sem fá bæði stafrænt og útprentað auglýsingaefni frá þessum aðilum. Það getur skilað stórum kúnnahópum, sérstaklega á sumrin, á meðan samstarf við bókunarsíður skilar miklum fjölda einstaklingsmiðaðra bókana sem dreifist betur yfir árið. Rétt eins og með ferðaskrifstofurnar eru allir með sína sérstöðu og sterkir á ákveðnum mörkuðum, til að mynda hefur Markaðsstofa Norðurlands náð miklum árangri með samstarfi við erlendar ferðaskrifstofur sem fljúga beint á Akureyri . Bókunarsíður leggja áherslu á að fjárfesta í markaðssetningu og markaður eins og Ísland getur haft mikil áhrif, til dæmis með því að taka þátt í stórum herferðum. Þessar herferðir hafa skilað íslenskri gistiþjónustu fleiri þúsundum gistinátta og þar með haft hliðaráhrif á aðra ferðatengda þjónustu.

Vegna öflugrar markaðssetningar stóru bókunarsíðanna eru fleiri milljónir gesta sem skoða síðurnar á ári hverju. Það er óneitanlega hægt segja að íslensk ferðaþjónusta hafi hagnast mikið á samstarfi við ferðaskrifstofur og bókunarsíður, enda er hlutfallið af heildarbókunum þeirra mun hærra í samanburði við beinar bókanir. Ferðaþjónustufyrirtæki út um allan heim hafa valið að nýta sér markaðssetningu og þjónustu þessara aðila og því er í raun ekki skrítið að hlutfallið sé svo hátt.

Komum Íslandi aftur á kortið

Almenn markaðssetning verður einnig mikilvæg þegar markaðssetja á áfangastaðinn Ísland á ný eftir farsóttartíma. Íslandsstofa sem keyrir herferðir á hverju ári hefur fengið það stóra og mikilvæga verkefni að koma Íslandi á framfæri erlendis, með góðum styrk frá íslenska ríkinu. Það eru því margar hendur sem koma að markaðssetningu á Íslandi. Nú er einmitt tíminn til að horfa til framtíðar í markaðssetningu og dreifa henni á markaði sem hafa verið okkur mikilvægir hingað til, en einnig á þá markaði sem við teljum okkur eiga möguleika á að komast inn á. Við verðum að vera klár í slaginn þegar allt kemst í eðlilegra horf og líta til þeirra miðla sem eru skila mestum árangri. Í núverandi ástandi skiptir máli að Ísland sem áfangastaður sé sem sýnilegastur á arðbærum mörkuðum og hefur Íslandsstofa unnið með helstu alþjóðlegu auglýsingastofum til að koma okkur á framfæri. Ferðaskrifstofur setja fókusinn á hópa- og einstaklingsmiðaðar ferðir og bókunarsíður herja á breiðan markað með ýmsum leiðum. Mikilvægt er að horfa til þeirrar markaðssetningar sem hefur reynst okkur vel og treysta á að hún muni aðstoða okkur við að auka og efla eftirspurn þegar fram líða stundir. Það er mikilvægt að horfa á heildarmyndina þegar fjallað er um áfangastaðinn Ísland. Nýtum þau tæki og tól sem við höfum og verum klár í slaginn um leið og færi gefst!

Höfundur er viðskiptastjóri hjá Expedia Group.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×