Bætir í vind í kvöld og élin verða kröftugri Atli Ísleifsson skrifar 25. mars 2020 07:00 Vindur verður á bilinu fimm til þrettán metrar á sekúndu, en bjartviðri verður austantil. Vísir/Vilhelm
Suðvestanáttin allsráðandi á Íslandi næstu daga. Yfirleitt verður frostlaust að deginum og ætti sólin að hafa nokkurn veginn undan að bræða þau él sem koma í dag. Vindur verður á bilinu fimm til þrettán metrar á sekúndu, en bjartviðri verður austantil. Hins vegar mun bæta í vind í kvöld þar sem élin verða kröftugri og mun sólin vart hafa undan og dálítil föl gæti því myndast þar sem sé orðið snjólétt, eins og allvíða á Suður- og Suðvesturlandi. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar segir að ekki séu líkur á að snjó taki upp annars staðar fyrr en um helgi þegar von sé á hlýrra lofti úr vestri. „Hins vegar er suðvestanáttin nánast þurr og allvíða léttskýjað norðaustanlands og á Austurlandi. Áfram svipuð dægursveifla í hitanum, en hiti gæti náð 4 til 5 stigum yfir daginn en um og undir frostmarki að næturlagi,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort Veðurstofunnar fyrir hádegið eins og það leit út klukkan 7 í morgun.veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Suðvestan 8-15 m/s og él, hvassast á annesjum, en bjartviðri NA- og A-til. Hiti kringum frostmark að deginum. Á föstudag: Norðvestlæg átt, 5-10 m/s og dálítil él, en lengst af léttskýjað syðra. Heldur kólnandi í bili. Á laugardag, sunnudag og mánudag: Vestanáttir, dálítil slydda á V-verðu landinu og síðar súldarloft, en þurrt eystra og hlýnar í veðri. Á þriðjudag: Útlit fyrir kólnandi veður með ofankomu fyrir norðan.
Veður Mest lesið Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Innlent Fundu Diego heilan á húfi í heimahúsi Innlent Svarar Kára fullum hálsi Innlent Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Erlent Vill eyða vantrausti sem sé olía á eld rasisma Innlent Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Erlent „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Innlent Mega fresta kosningu í allt að viku verði óveður á laugardag Innlent Komin með skýra mynd af andláti móðurinnar Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Einn með stöðu sakbornings þrátt fyrir tvo þjófa Leggja til að fleiri heilbrigðisstéttir geti gefið út vottorð Tóku fyrstu skóflustunguna að nýrri verknámsaðstöðu í FB Á góðri leið með að landa samningi í dag eða á morgun Komin með skýra mynd af andláti móðurinnar Um 43 prósent vilja aukinn einkarekstur í heilbrigðiskerfinu Fundu Diego heilan á húfi í heimahúsi Svarar Kára fullum hálsi Lokahönd lögð á kjarasamning lækna í Karphúsinu og Kappleikar í kvöld Þúsundir áhugasamra sjálfboðaliða en engin formleg lögreglurannsókn HR-ingar spyrja frambjóðendur spjörunum úr Segir Miðflokksmönnum að „gráta minna og brosa meira“ Segja allt of mikið gert úr hneykslismálum stjórnmálamanna Súðavíkurnefnd skipuð og hefur ár til að skila niðurstöðum Meirihluti aukinna ríkisútgjalda farið í laun og bætur Mega fresta kosningu í allt að viku verði óveður á laugardag Vill eyða vantrausti sem sé olía á eld rasisma Kölluð út vegna fiskibáts sem hafði misst vélarafl Leitaði á lögreglustöð með áverka eftir líkamsárás Virknin stöðug og bundin við nyrsta gíginn Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Flugvélar og fólk skautuðu á Hafravatni Tvær á toppnum Gasmengun helsta hættan í Grindavík „Það má Guð vita“ Bælin tóm og Diegos sárt saknað: „Hann er einn af okkur“ „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Bjartsýni í Karphúsinu og kattarins Díegó leitað Lofa fullum trúnaði ef Diego verður skilað Leitaði trúnaðarupplýsinga til að staðfesta orðróm en fékk sparkið Sjá meira