Lífið

RAX Augnablik: „Þegar hann er í sínum versta ham getur hann sprengt hús í tætlur“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Ragnar Axelsson ljósmyndari hefur náð ótrúlegum myndum í gegnum árin í jökulstormum á Grænlandi.
Ragnar Axelsson ljósmyndari hefur náð ótrúlegum myndum í gegnum árin í jökulstormum á Grænlandi. RAX

„Piteraq þýðir sá sem ræðst á þig og hann verður til inni á ísnum, inni á jökli og rennur niður þrjú þúsund metra inn að austurströndinni eins og ósýnilegt stórfljót,“ segir Ragnar Axelsson.

Ljósmyndarinn hefur mjög gaman að því að taka myndir í vondu veðri og hefur meðal annars náð mögnuðum myndum í Piteraq jökulstormum sem skella oft á yfir vetrartímann á austurströnd Grænlands.

„Vindhraðinn getur náð áttatíu metrum á sekúndu og þegar hann er í sínum versta ham getur hann sprengt hús í tætlur.“

RAX segir að það sé eins og það rjúki úr fjöllunum áður en Piteraq skellur á. Hann segir frá mögnuðum ljósmyndum sínum í jökulstormum Grænlands í nýjasta þættinum af RAX Augnablik. Árið 1997 var hann veðurtepptur í viku í Grænlensku þorpi og náði þá að fanga andrúmsloftið og augnablikin í kringum þessar aðstæður hjá íbúum og hundunum þar.

„Þennan dag voru fjallgöngumenn uppi í fjöllum, fjórir ungir menn frá Evrópu. Einn þeirra nær að skipta um föt og hinir ekki. Þeir eru sveittir eftir að ganga upp fjallshryggina og þrír þeirra farast út af kulda,“ rifjar RAX upp frá þessum jökulstormi.

RAX Augnablik eru örþættir og þátturinn Jökulstormur er tæpar fjórar mínútur að lengd. Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: RAX Augnablik - Jökulstormur

„Menn þurfa að vera viðbúnir því þegar þeir eru á veiðum að þetta skelli á, að komast heim. Það er stundum ekki auðvelt,“ segir RAX meðal annars í þættinum. RAX hefur sagt sögu af slíkri hættuför í eldri þætti af RAX Augnablik.

„Við hlaupum út á ísinn einhverja sjö eða átta kílómetra. Hann verður að skilja sleðann eftir því að við þurfum að fara hratt yfir og ísinn er allur sprunginn.“

Þáttinn Í krumlu hafíssins má finna í spilaranum hér fyrir neðan.

Í þáttunum RAX AUGNABLIK segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2 Maraþon. 

Hægt er að sjá alla þættina HÉR á Vísi.


Tengdar fréttir

RAX Augnablik: „Ísbjörninn er svo klókur og snöggur að gera árás“

Örþættirnir RAX Augnablik eru sýndir á Vísi og í Stöð 2 Maraþon alla sunnudaga. Í nýjasta þættinum fer ljósmyndarinn Ragnar Axelsson yfir myndirnar sem hann tók í þegar hann fylgdi eftir veiðimönnum í leit að fjórum ísbjörnum úti á hafís þegar jökulstormur skall á.

RAX Augnablik: „Þetta var falleg vinátta manns og hunds“

Ragnar Axelsson smellti mynd af Axel á Gjögri, þar sem hann sat í bátnum sínum og sagði honum sögu. Á steini við hlið hans var hundurinn Týri, en ljósmyndarinn bað ekki um leyfi áður en hann tók þessa einstöku mynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.