Albumm

Búið að maska út kynfæri og geirvörtur

Ritstjórn Albumm skrifar
Countess Malaise.
Countess Malaise.

Nýlega kom út nýtt lag með Countess Malaise. Lagið nefnist Exciting og er aðgengilegt á öllum helstu streymisveitum.

Dýrfinna Benita er rappari sem hefur komið fram undir hliðarsjálfinu Countess Malaise. Hún hefur unnið með mörgum öðrum listamönnum, þar á meðal hljómsveitinni CYBER og Lord Pusswhip. Hún sendi frá sér plötuna HYSTERÍA í október í fyrra sem inniheldur átta lög, öll samin af Dýrfinnu og aðallega pródúseruð af Lord Pusswhip, ásamt Mutant Joe og Zgjim á tveimur lögum. 

Dýrfinna hefur aldrei farið troðnar slóðir í tónlistar- og listsköpun, og ber platan þess sérstaklega merki. Umslagið á plötunni er mynd af henni þar sem búið er að maska út kynfæri og geirvörtur en það minnir á það þegar fólk lendir í síunni á samfélagsmiðlum þar sem þessir líkamspartar sjást, þó ekki sé í kynferðislegum tilgangi og er sett í bann í framhaldinu.

Exciting á Spotify. Fylgstu með Countess Malaise á Facebook og Instagram


Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.