Albumm

Hálf-til­viljunar­kenndur ryþmi klipptur niður í popp­laga­s­trúktúr

Ritstjórn Albumm skrifar
Listasamlagið og útgáfufélagið Post-dreifing hefur verið áberandi síðustu ár.
Listasamlagið og útgáfufélagið Post-dreifing hefur verið áberandi síðustu ár.

Útgáfufélagið Post-dreifing vekur athygli á nýrri tónlist eftir Sideproject og segir að hún eigi fá að hljóma um eyru landsmanna með fjölbreyttari hætti.

„Með tilraunum í nýju vinnuferli yfir seinasta ár hefur hljómsveitin Sideproject smíðað sér nýjan hljóðheim sem byggist á hálf-tilviljunarkenndum ryþmum og spunum klipptum niður í popplagastrúktúr á stuttskífunni radio vatican.

Lögin eru undir miklum áhrifum frá danstónlist og tilraunatónlist. Þau einkennast af risastórri stereomynd, hreyfingu á áferðum og rými og eru líklega vönduðustu stykkin þeirra hingað til.“

Öll útgefin tónlist Post-dreifingar er aðgengileg til niðurhals gegn valfrjálsu gjaldi á Bandcamp síðu útgáfunnar og er velkomið að nýta efnið jafnt til útvarpsspilana og einkanota.

Nánar á Post-dreifing.is. Fylgstu með Sideproject á Instagram.


Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.