Albumm

Birgir í nýjasta lagi September

Ritstjórn Albúmm.is skrifar
Hljómsveitin September ásamt Birgi.
Hljómsveitin September ásamt Birgi.

Nýjasta lag September er komið út á streymisveitum. Lagið sem nefnist Already Better er sungið af söngvaranum Birgi. 

Birgir Steinn Stefánsson er ungur lagahöfundur sem hefur gert gott mót á streymisveitum undanfarin ár, en lagið hans Can You Feel It hefur fengið um 25 milljónir spilana á Spotify. Birgir gaf út sína fyrstu plötu, Untold Stories í maí á síðasta ári.

September er lagahöfunda- og framleiðslu teymi skipað af þeim Eyþóri Úlfari Þórissyni og Andra Þór Jónssyni og hafa þeir síðastliðin þrjú ár gefið út lög sem þeir hafa unnið ásamt þekktum íslenskum söngvurum þ.á.m. Jóni Jónssyni og Birgittu Haukdal.

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].









×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.