Lífið

Bjóða upp á­ritaða Liver­pool-treyju til styrktar Um­hyggju

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Treyjan er merkt miðjumanninum fyrrverandi Xabi Alonso og árituð af honum sjálfum.
Treyjan er merkt miðjumanninum fyrrverandi Xabi Alonso og árituð af honum sjálfum. Etsuo Hara/Getty

Liverpool-klúbburinn á Íslandi, sem er félagsskapur stuðningsmanna enska knattspyrnuliðsins Liverpool hér á landi, stendur nú fyrir uppboði á treyju sem er merkt og árituð af fyrrum leikmanni liðsins, Xabi Alonso.

Uppboðið er haldið til styrktar Umhyggju, félags langveikra barna, og það að ákveðnu tilefni, eins og fram kemur á vef klúbbsins, Liverpool.is.

„Kamilla Eir Styrmisdóttir lést 6. maí síðastliðinn, rétt tæplega sex mánaða gömul. Kamilla barðist bæði við hjartabilun og efnaskiptasjúkdóminn MMA á sinni stuttu ævi.

Fjölskylda Kamillu heitinnar er miklir stuðningsmenn Liverpool og því hefur Liverpoolklúbburinn á Íslandi ákveðið að efna til uppboðs á treyju til minningar um Kamillu,“ segir á vefnum.

Eins og áður kom fram er treyjan merkt Xabi Alonso og árituð af honum sjálfum, en hann lék með Liverpool frá 2004 til 2009, og vann til stórra titla meðan hann var hjá félaginu.

Hægt er að senda tilboð í treyjuna á netfangið [email protected] eða í gegn um Facebook-síðu félagsins. Uppboðsfjárhæðin mun renna óskipt til Umhyggju, sem veitti fjölskyldu Kamillu mikinn stuðning í veikindum hennar og eftir að hún lést.

Í samtali við fréttastofu segir Hallgrímur Indriðason, formaður Liverpool-klúbbsins, að hæsta boð standi í 110.000 krónum, en uppboðið stendur til sunnudagsins 30. maí. Á vef klúbbsins er hægt að sjá hæsta tilboð hverju sinni.

„Ég vil hvetja stuðningsmenn og aðra til að taka þátt. Þetta er einstakt tækifæri til að eignast einstakan grip og styðja gott málefni í leiðinni,“ segir Hallgrímur.

Uppfært 31. maí 2021

Hæsta boð sem fékkst í treyjuna var 270 þúsund krónur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.