Lífið

Auðvelda fólki að fá persónuleg skilaboð og kveðjur frá þekktum Íslendingum

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
María Hrund Marinosdóttir og Björgvin Franz Gíslason.
María Hrund Marinosdóttir og Björgvin Franz Gíslason. Vísir/Vilhelm

Stjörnuregn er splunkunýr vefur þar sem notendur geta pantað rafrænar tækifæriskveðjur frá sínum uppáhalds listamanni eða stjörnu.

Á bak við fyrirtækið standa Björgvin Franz Gíslason leikari og skemmtikraftur, María Hrund Marínósdóttir umboðsmaður og framkvæmdastjóri Móðurskipsins og Einar Aðalsteinsson leikari. Síðan opnar fljótlega en nú leita þau að fleiri stjörnum á skrá.

„Með þessu nýja formi viljum við gefa almenningi, hvar sem hann er á landinu eða í heiminum möguleika á að fá þekkta Íslendinga beint heim í stofu til sín eða símann á einfaldan og fljótlegan máta sem ekki hefur áður þekkst á Íslandi. Með því að færa þessa einstaklinga nær aðdáendum sínum viljum einnig gera þeim kleift að þiggja sanngjana þóknun fyrir vinnu sína á þessu rafræna formi skemmtibransans sem hefur oftar en ekki fallið á milli þilja,“ segir Björgvin Franz í samtali við Vísi.

Ákall til stórstjarna Íslands

María Hrund segir að nú þegar séu þau komin með marga þekkta listamenn á skrá en vilja endilega fá fleiri til liðs við Stjörnuregn til að stuðla að sem mestri fjölbreytni.

„Þar sem að það styttist óðum í að Stjörnuregn fari í loftið viljum við gera ákall til allra stjarna á Íslandi, hvort sem þeir eru leikararar, söngvarar, skemmtikraftar, íþróttamenn og konur, samfélagsmiðlastjörnur eða í raun hverjir þeir sem eiga sér aðdáendur þarna úti.“

Nú þegar er vinsælt að spila kveðjur frá þekktum Íslendingum í brúðkaupum, stórafmælum, útskriftum og við önnur tilefni. Björgvin Franz segir að þekktir Íslendingar vilji auðvitað sinna sínum aðdáendum vel en skilaboð eigi það til týnast eða skila sér ekki á hinum ótal mörgu samfélagsmiðlum stjarnanna, en með þessu móti er einfaldara ð fá persónulegar kveðjur og tryggja að þær skili sér til þess sem pantar.

„Við hvetjum allar stjórstjörnur landsins til að setja sig í samband við okkur á [email protected] svo við getum skapað rafrænt rými fyrir þær á heimasíðunni okkar sem og ný tækifæri innan skemmtanageirans.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.