Lífið

Stjörnulífið: Skvísulæti, sól og sumarsæla

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar verður farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga og jafnvel deila því með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum.
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar verður farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga og jafnvel deila því með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum. Samsett mynd/

Hvort sem það er úti í bæ, úti í sveit, uppi á palli eða inni í tjaldi þá virðast stjörnurnar skemmta sér vel. 

Sumarsælan svífur yfir vötnum þessa dagana hvort sem að fólk leggur land undir fót eða þrykkir tjaldhælum í fagurgræna grasið. Sumarfríið og ferðalögin eiga sviðið þessa vikuna. 


Söngvarinn og gleðisprengjan Jón Jónsson lenti í 2. sæti í Dyrfjallahlaupinu á Borgarfirði Eystri um helgina en börnin hans hlupu með honum yfir marklínuna. 

Hann eyddi þó kvöldinu ekki í að að hvíla sig heldur tróð upp með bróður sínum og söngvaranum Frikka Dór. 

Fjölskyldan nýtur nú lífsins saman á ferðalagi um landið. 

Forsetahjónin létu sig ekki vanta á Símamótið um helgina þar sem dóttir þeirra keppti í fótbolta.

 Forsetafrúin, Eliza Reid, birti fallega mynd af þeim hjónum í gær og skrifaði „Stór dagur í boltanum.“ 

Leikkonan Íris Tanja hefur verið að ferðast um landið síðustu daga og birti fallega mynd af sér í Ásbyrgi um helgina. Hún lofar landið sitt fagra. 

Rapparinn Herra Hnetusmjör stækkaði veldið sitt í vikunni eins og hann orðar það og opnaði nikótínbúðina Vörina. 

Söngkonan síunga, Birgitta Haukdal, nýtur íslenska sumarsins og birti fallega mynd af sér.

Þórdís Valsdóttir, fjölmiðlakona og þáttastjórnandi Reykjavík síðdegis, tók skyndiákvörðun um  helgina og brunaði alla leið á Siglufjörð. 

Hún segir skyndiákvarðanir vera þær bestu. 

Ásmundur Einar Daðason barnamálaráðherra er farinn að njóta sumarblíðunnar og birti sumarlega mynd af sér um helgina. 

Áhrifavaldurinn Sunneva Einars skellti sér til Lundúna þar sem hún nýtur lífsins, litrík og glæsileg að vanda. 

Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal fagnaði 41 árs afmæli sínu um helgina. Hann birti mynd af sér með drengjunum sínum tveimur og segir afmælisdaginn hafa verið rólegan en þann besta. 

Ljósmyndarinn, listmálarinn og tískugyðjan Saga Sig birti um helgina fallega mynd af sér við sjóinn á Patreksfirði.

Söngdívan Svala Björgvins birti glæsilega speglasjálfu. 

Leikkonan og söngkonan Þuríður Blær var í tökum á spennandi myndbandi um helgina með systrum sínum úr Reykjavíkurdætrum. 

Guðlaugur Þór utanríkisráðherra og kona hans Ágústa Johnson létu sig ekki vanta á Wembley stadium í London um helgina. 

Athafnakonan Birgitta Líf kom fram á sérstakri Carnivalhátíð Sushi Social síðasta fimmtudag en Birgitta dansaði þar salsa fram eftir kvöldi ásamt glæsilegum hópi kvenna.

Um helgina birti hún svo mynd af sér í Parísarborg þar sem hún nýtur lífsins lystisemda. 

Brynja Dan var stödd á Tenerife í síðustu viku og birti sumarlega mynd af sér í sólbaði alsæl með ísinn sinn. 

Áhrifavaldurinn og skagamærin Hrefna Dan heimsótti nýja miðbæinn á Selfossi. Hún virðist ánægð með útkomuna og segir miðbæinn mjög sjarmerandi.  

Athafnamaðurinn Einar Bárðarson virtist einnig glaður með sinn heimabæ og birti mynd af nýju húsi Mjólkurbús Flóamanna sem er hluti af nýja miðbænum. 

Sigga Dögg kynfræðingur hefur mikið fjallað um mikilvægi þess að þjálfa grindarbotninn að undanförnu en í vikunni birti hún skemmtilega mynd af sér hoppandi á trampólíni. 

Hún fagnar því að geta loksins hoppað án þess að pissa í sig. 

Leikarinn Ólafur Darri hefur verið staddur í Ástralíu síðustu fjóra mánuði þar sem hann er við tökur á spennuþáttunum The Tourist. Ólafur leikur þar eitt aðalhlutverkanna en þættirnir verða meðal annars sýndir á BBC og streymisveitunni HBO Max.

Áhrifavaldurinn Camilla birti skemmtilega mynd heima í stofu þar sem hún fer yfir fyrstu prufur fyrir fatamerkið sitt Camy collections. 

Gríma Björg Thorarensen innanhússhönnuður og Skúli Mogensen fögnuðu afmæli Grímu á Ítalíu í gær, sunnudag. Ekki ónýtt að vera á Ítalíu sem tryggði sér Evrópumeistaratitilinn í knattspyrnu karla í gær. Skúli og Gríma tóku þátt í fagnaðarlátunum en þau njóta lífsins í nágrenni Como-vatnsins.

María Birta leikkona við tökur vestan hafs.

„Reverend Peabody and Sister Victoria, Ég elska vinnuna mína.. ég held það sjáist,“ segir María Birta.

Ragnar Sigurðsson knattspyrnukappi gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi í Danmörku um helgina.

Sjónvarpskonan Eva Laufey Kjartan skellti sér eins og fleiri á Símamótið í Kópavogi.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur dvalið á Spáni undanfarna daga og nýtur lífsins vel. Þar hefur hún meðal annars notið félagsskapar Hersis Arons Ólafssonar, aðstoðarmanns Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra.

Crossfit-konan Annie Mist fangaði afmæli síns heittelskaða Frederiks Ægidius um helgina. Hún segir þær mæðgurnar vera einstaklega heppnar með Frederik.

Páll Óskar heldur áfram að halda Pallaböll um landið. Stöðvarfjörður og Akureyri eru meðal annars að baki og um helgina var tjúttað í Borgarnesi.

Jónas R. Jónsson tók lagið í afmæli vatnskóngsins títtnefnda Jóns Ólafssonar á dögunum. Þar var kátt á hjalla eins og sjá má.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.