Lífið

Tánings­piltur bætist í hóp meintra þol­enda R. Kel­ly

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
"Trapped In The Closet" New York Screening
Getty/John Lamparski

Saksóknarar í máli tónlistarmannsins R. Kelly hafa nú sakað hann um að hafa átt í kynferðislegu sambandi við ólögráða pilt árið 2006. Pilturinn bætist þar með í hóp þeirra fjölda kvenna sem hafa stigið fram með ásakanir á hendur tónlistarmanninum.

Lögfræðingi Kelly barst nú á dögunum skjöl þess efnis að tónlistarmaðurinn hefði átt í kynferðislegu sambandi við pilt sem þá var 17 ára. Þeir eiga að hafa kynnst árið 2006 þegar ungi pilturinn var að reyna fyrir sér sem tónlistarmaður.

Kelly er sagður hafa hitt piltinn á McDonalds og boðið honum að koma í hljóðver sitt í Chicago. Kelly á í kjölfarið að hafa spurt piltinn hvað hann væri tilbúinn að leggja á sig til þess að láta draum sinn um að verða tónlistarmaður rætast.

Þá á hann að hafa stungið upp á kynferðislegum athöfnum sem pilturinn er sagður hafa orðið við.

Pilturinn á síðar að hafa kynnt Kelly fyrir öðrum vini sínum, sem einnig var 16 eða 17 ára. Kelly á einnig að hafa átt í kynferðislegum samskiptum við hann. Þá er tónlistarmaðurinn sakaður um að hafa tekið kynferðislegar athafnir piltanna á myndband.

Tónlistarmaðurinn R. Kelly hefur alfarið neitað sök.Getty/E. Jason Wamsgans-Pool

Saksóknarar í málinu telja afar mikilvægt að dómstólar taki frásagnirnar til greina, þar sem þær sýni fram á að þær ákærur sem þegar hafa verið lagðar fram á hendur Kelly séu ekki einsdæmi, heldur hluti af mun stærra mynstri.

Í hátt í tvo áratugi hafa konur, ein af annarri, stigið fram með ásakanir á hendur Kelly og borið hann þungum sökum. Heimildarmyndin Surviving R. Kelly sem kom út árið 2019 vakti bæði undrun og hneykslan en í henni saka nokkrar konur R. Kelly um gróft kynferðislegt ofbeldi.

Nokkrar þeirra sem bjuggu á heimili hans í Chicago segja að Kelly hafi drottnað yfir þeim sem leiðtogi í eins konar sértrúarsöfnuði. Þær hafi neyðst til þess að stunda með honum kynlíf og þurft að kalla hann „pabba“. Þá þurftu þær að biðja hann leyfi fyrir hversdagslegustu hlutum á borð við að fá að nota salernið.

Kelly hefur verið ákærður fyrir kynferðislega misnotkun, barnaklám, mannrán og að hindra framgang réttvísinnar í New York, Chicago og Illinois en hefur lýst sig saklausan af öllum ákæruliðum.


Tengdar fréttir

R. Kelly handtekinn vegna mansals

Lögreglumenn frá New York og fulltrúa heimavarnaráðuneytisins eru sagðir hafa tekið söngvarann höndum í nótt.

R. Kelly heldur fram sakleysi sínu

Tónlistarmaðurinn R. Kelly hafnar öllum ásökunum í sinn garð og heldur fram sakleysi sínu en Kelly hefur verið ákærður fyrir tíu kynferðisbrot, þar af níu gegn stúlkum undir lögaldri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.