Innlent

Vonast til þess að óskýrar myndir veiti vísbendingar

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Lögreglan vill ná tali af þessum manni.
Lögreglan vill ná tali af þessum manni. Mynd/Lögreglan

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum sem sjá má á meðfylgjandi myndum.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að þrátt fyrir að myndirnar séu óskýrar megi þó ætla að þær geti gefið vísbendingar um hver maðurinn sé.

Er viðkomandi beðinn um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.

Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig vinsamlegast beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected]

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum og er hann vinsamlegast beðinn...

Posted by Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu on Mánudagur, 26. júlí 2021



Fleiri fréttir

Sjá meira


×