Albumm

Tunglleysa fagnar útkomu nýrrar plötu í Space Odyssey

Ritstjórn Albúmm.is skrifar

Hljómsveitin Tunglleysa sendir frá sér samnefnda plötu í dag, 10. september. Tunglleysa er skipuð þeim Þorkatli Atlasyni og Pan Thorarensen, en þeir hafa áður sent frá sér plötuna Flugufen. 

Platan er tekin upp í Berlín og Reykjavík og er útkoman virkilega glæsileg. 

Þeim til aðstoðar á nýju plötunni eru söngkonurnar Mari Kalkun og Katrína Mogensen, Caudio Puntin á klarinett og rafhljóð, Tim Sarhan á trommur, Sebastian Studnitzky á trompet, Júlía Mogensen á selló og Borgar Magnason á kontrabassa. Platan var hljóðrituð í Berllín og Reykjavík, Albert Finnbogason mixaði, Arnold Kasar gerði master og Greta Þorkelsdóttir hannaði albúm. Reykjavik Record Shop gefur út gripinn.

Í tilefni útgáfunnar ætlar sveitin að halda lítið útgáfuhóf/hlustunarparty í Space Odyssey á Skólavörðustíg 22b og bjóða fólki að kíkja við milli klukkan 16:00 og 18:00. Léttar veitingar verða í boði.

Fylgstu með Tunglleysa á Facebook

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.