Lífið

Vilt þú taka þátt í þriðju þáttaröð af Skreytum hús?

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Soffía Dögg fer nú af stað með næstu þáttaröð af Skreytum hús.
Soffía Dögg fer nú af stað með næstu þáttaröð af Skreytum hús.

Vísir leitar nú að þátttakendum fyrir þriðju þáttaröðina af Skreytum hús, sem sýndir eru hér á Vísi og á Stöð 2+ efnisveitunni. Í þáttunum tekur Soffía Dögg Garðarsdóttir rými í gegn og fá áhorfendur að fylgjast með ferlinu alveg frá byrjun.

Í hverjum þætti er tekið fyrir ákveðið verkefni og þurfa íbúðareigendur að vera tilbúnir til þess að ræða um rýmið fyrir framan myndavélar. 

Tökurnar fara fram á næstunni. Aðspurð hvað fólk ætti að vita áður en það sækir um svarar Soffía glottandi að þetta sé eins og að fá fellibylinn Soffíu inn í hús. Umsækjendur eigi að vera opnir fyrir breytingum og tilbúnir í framkvæmdir, því það lendi alltaf eitthvað á heimilisfólkinu hvort sem það er að mála eða annað.

Í einum þætti af Skreytum hús breytti Soffía Dögg Garðarsdóttir fallegu rými í risíbúð í Reykjavík. Skreytum hús

Tekið er á móti umsóknum fyrir nýju þáttaröðina á netfangið [email protected] og leggur Soffía mikla áherslu á að fólk sendi myndir með af rýminu því það auðveldar allt ferlið.

Hér er hægt að horfa á eldri þætti af Skreytum hús. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.