Albumm

Kalla eftir heilindum stjórnmálamanna

Ritstjórn Albúmm.is skrifar

Silkikettirnir voru að senda frá sér brakandi ferskt lag sem heitir Segið bara satt og er fyrsta lagið af EP plötu sem væntanleg er á næstu misserum. 

Texti lagsins setur þéttingu auðmagns í heilsufarslegt samhengi og kallar eftir heilindum stjórnmálamanna. Silkikettirnir samanstendur af Bergþóru Einarsdóttur skálds, kennara og rappara, fyrrum Reykjavíkurdóttur, og Guðrúnu Huldu Pálsdóttur, kontrabassaleikara og fjölmiðlakonu.

Lagið er pródúserað af Silkikettunum ásamt Bjarna Þór Jenssyni sem sá einnig um mix. Að upptökum og hljóðmynd komu einnig Daníel Auðunsson og Gunnar Már Jakobsson. Magnús Trygvason Eliassen trommar.

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.