Albumm

Vænstu skinn en sumir hrjúfir

Ritstjórn Albúmm.is skrifar

Hljómsveitin Loftskeytamenn hefur sent frá sér nýtt lag sem ber nafnið Einn á báti.

Lagið er óður til þeirra íslensku karlmanna sem hafa í gegnum aldirnar sótt björg í bú fyrir fólk sitt, og lagt líf sitt að veði fyrir ást sína á fjölskyldu sinni og samfélagi.  Það má alveg minna á það í ólgusjó þeirrar umræðu um karlmennskuna sem átt hefur sér stað undanfarin ár, að langflestir eru menn vænstu skinn sem vilja öllum í kringum sig vel. Sumir eru kannski hrjúfir, en þannig ber lífsbaráttan okkur gjarnan til.

Upptökur fóru fram í Sundlauginni undir styrkri stjórn Árna Hjörvars Árnasonar. Loftskeytamenn eru: Guðmundur Ingi Þorvaldsson, söngur. Óli Rúnar Jónsson, gítar. Ásgrímur Angantýsson, píanó. Sturlaugur Björnsson, bassi og Örn Ingi Ásgeirsson Trommur. Myndbandið gerði Ernir Ómarsson Upptaka þess fór fram í Tjarnarbíói og sá Fjölnir Gíslason um hönnun lýsingar. Útgefndi er Fimbulvetur.

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.