Albumm

„Fyrir alla lygarana sem vilja dansa í gegnum sársaukann“

Ritstjórn Albúmm.is skrifar

Á föstudaginn sem leið gaf tónlistarkonan Annalísa út lagið Ég er bara að ljúga er það ekki? (Party Edit).  

Lagið er partýútgáfa eða svokallað CLUB MIX af upprunalega laginu sem kom út á Youtube 17. September ásamt myndbandi. 



Myndbandsverkið fjallar um afleiðingar ofbeldis fyrir þolendur. „Lagið er partýlag (eins og anthem) fyrir alla lygarana þarna úti sem vilja dansa í gegnum sársaukann” segir Annalísa að lokum. 



Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.