Viðar Ari tryggði Sandefjord sigur í Íslendingaslag Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 27. október 2021 17:56 Viðar Ari, til hægri. Hér er hann með Ísfirðingnum Emil Pálssyni en þeir voru samherjar á síðustu leiktíð. Emil leikur nú með Sarpsborg í sömu deild. mynd/sandefjord Íslendingar voru í eldlínunni í fjórum af þeim fimm leikjum sem var að ljúka rétt í þessu í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Viðar Ari Jónsson skoraði seinna mark Sandefjord er liðið vann 2-0 sigur gegn Íslendingaliðinu Strömsgodset.
Það var Alexander Ruud Tveter sem kom heimamönnum í Sandefjord í 1-0 forystu á 50. mínútu, áður en Viðar Ari tvöfaldaði forystuna tveimur mínútum síðar eftir stoðsendingu frá Kristoffer Hansen. Þetta reyndist seinasta mark leiksins og lokatölur því 2-0. Ari Leifsson var í byrjunarliði Strömsgodset og Valdimar Ingimundarson spilaði seinustu tíu mínúturnar fyrir liðið. Sandefjord færir sig upp í tíunda sæti með sigrinum, og er nú aðeins einu stigi á eftir Strömsgodset sem situr í níunda sæti. Adam Örn Arnarson spilaði seinustu tíu mínúturnar fyrir Tromsö er liðið vann 2-0 sigur gegn Odd á heimavelli. Tromsö og Odd sitja í 11. og 12. sæti, bæði með 28 stig. Brynjólfur Darri Willumsson kom inn á sem varamaður á 69. mínútu fyrir Kristiansund er liðið steinlá fyrir botnliði Mjondalen, 4-0. Sigurinn kom Mjondalen reyndar af botninum og er liðið nú í næst neðsta sæti með 18 stig. Kristiansund situr í því fimmta með 39 stig. Hólmar Örn Eyjólfsson þurfti að sætta sig við bekkjarsetu er hann og félagar hans í Rosenborg gerðu markalaust jafntefli við Haugesund. Hólmar og félagar sitja í þriðja sæti deildarinnar með 42 stig, tíu stigum meira en Haugesund sem situr í því áttunda.
Norski boltinn Mest lesið Launaði greiðann og gaf liðsfélaganum sigurinn Formúla 1 „Ég þarf smá útrás“ Handbolti Sjö marka fyrri hálfleikur skaut Skyttunum í annað sætið Enski boltinn Frábær byrjun Slot ekki nóg til að slá út Solskjær Enski boltinn Tryggvi frákastahæstur í tapi gegn gömlu félögunum Körfubolti Musiala bjargaði stigi fyrir Bayern Fótbolti Fallbaráttulið Nantes tók stig af meisturunum Fótbolti Óskar Hrafn opnar sig um Haugesund: Best að falla á eigið sverð Fótbolti HM í fótbolta 2034 mun fara fram um vetur Fótbolti Öruggur sigur ÍBV gegn Val Handbolti Fleiri fréttir Fallbaráttulið Nantes tók stig af meisturunum Musiala bjargaði stigi fyrir Bayern AC Milan aftur á sigurbraut Mark dæmt af Elíasi en liðið upp um fjögur sæti Þrenna og vítaþrenna í leikjum dagsins Sjö marka fyrri hálfleikur skaut Skyttunum í annað sætið HM í fótbolta 2034 mun fara fram um vetur Börsungar töpuðu óvænt á heimavelli Frábær byrjun Slot ekki nóg til að slá út Solskjær Óskar Hrafn opnar sig um Haugesund: Best að falla á eigið sverð Messi segist sakna Barcelona Guardiola: Núna þarf ég að sanna mig Guðmundur gæfi Kelleher risa samning: „Hverrar krónu virði og rúmlega það“ Fékk rétt svör við öllu nema um bjórinn Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ Sjá meira