Skoðun

Skóli og samfélag

Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar

Skólakerfið er mikilvægt og gefandi fyrir okkur öll, foreldra, nemendur og samfélagið allt.

Við erum að horfast í augu við ágjafirnar af einhverjum mestu samfélagsbreytingum sem nokkur kynslóð hefur þurft að gera, loftslagsbreytingar, tækniþróun og heimsfaraldur svo eitthvað sé nefnt. Í þessu árferði hefur skólakerfið og kennarar sýnt mikinn sveigjanleika, hugmyndaauðgi og kraft í að koma til móts við og takast á við þessar breytingar. Áskoranirnar eru margskonar, krefjandi og jafnvel ófyrirséðar. Hlutverk skóla og þar með talið kennara markast vitaskuld af þessu starfsumhverfi og hefur ýmsar afleiðingar.

Sú staðreynd að kulunum í kennarahópum er svo útbreidd, að líkja má við faraldur. Við þessu þarf að bregðast. Vinnuaðstæður kennara eru gjarnan þannig að að hætta er á kulnun. Þetta er afleiðing værukærðar í sviptingum undanfarinna ára, og í samfélagslegum krefjandi áskorunum.

Hversu oft höfum við heyrt sönginn ,,skólakerfið þarf að taka á þessu”? Skólakerfið og kennarar hafa þurft að búa við ásókn úr mörgum áttum með allskyns kröfur og jafnvel ásakanir.

Kennarar eru alltumvefjandi í starfi sínu og bera ekki bara ábyrgð á skólastofunni heldur þurfa að sjá fyrir viðbrögð ólíkra nemanda og bregðast stöðugt við óvæntum atburðum. Þá eru alls konar nemendur í hópum sem þurfa sérstaka aðstoð og þrátt fyrir að kennarar séu sérfræðingar í menntun eru þeir ekki endilega ekki sérfræðingar í þeim sértæku fræðum sem nemendahópurinn þarf oft á tíðum. Það þarf sérfræðinga á sviði talmeinafræði, sálfræði og félagsráðgjafar inn í skólana, til handleiðslu og samvinnu með kennurum og að taka á sérhæfðum vanda sem skapast í fjölbreyttum nemendahópum.

Kennarastéttina þarf að styrkja með raunverulegum aðgerðum. Ekki með bútasaumi og plástri, heldur með víðtæku samráði um lausnir til frambúðar.

Lausnir við tilteknum vandamálum sem snúa að vinnuaðstæðum og álagi kennara á að leysa þar sem sitja við borð kennarar á vettvangi, fulltrúar samninganefnda, ráðuneytis menntamála og sveitarfélaga. Á breiðum grundvelli finnum við saman bestu lausnirnar, sem verða að veruleika.

Starfsþróun kennara þarf að haldast í hendur við þær áskoranir sem samfélagsbreytingar kalla eftir. Skóli án aðgreiningar er dæmi um jákvæða þróun en honum þurfa að fylgja bjargir og úrræði.

Saman þurfum við að fara í gegnum öldurót breytinga sem samstilltur hópur kennara og forystu, fara í gegnum ágjafirnar með samtakamætti, skilningi og víðsýni. Það er samfélaginu öllu til heilla.

Höfundur er frambjóðandi til formanns Kennarasambands Íslands.


Tengdar fréttir

Fjögur í fram­boði til formanns Kennara­sam­bandsins

Fjögur bjóða sig fram til formanns Kennarasambands Íslands, en frestur til að bjóða sig fram rann út á miðnætti í gær. Áður hafði verið greint frá því að formaðurinn Ragnar Þór Pétursson myndi ekki bjóða sig fram til áframhaldandi formennsku.

Hanna Björg fer í framboð

Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, framhaldsskólakennari og kynjafræðingur hefur ákveðið að bjóða sig fram til formennsku í Kennarasambandi Íslands.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×