Albumm

Mugison, Lay Low, Salóme Katrín og Supersport hita upp fyrir OMAM

Ritstjórn Albúmm.is skrifar

Of Monsters and Men halda upp á 10 ára afmæli fyrstu plötu þeirra My Head is an Animal 9. 10., 11. og 12. nóvember. Þau hafa boðið til sín góðum vinum til að halda upp á áfangann með þeim í Gamla Bíó í miðbæ Reykjavíkur.

9. nóvember – Lay Low, 10. nóvember – Mugison, 11. nóvember – Salóme Katrín og 12. nóvember – Supersport!

Hljómsveitin mun spila plötuna í heild sinni á öllum tónleikunum í bland við nokkur mismunandi lykil lög, gömul og ný, þannig að engir tónleikar eru eins. Tónleikarnir 9. og 10. nóvember eru uppseldir og fáir miðar eru eftir 10. og 11. nóvember. Hægt er að nálgast miða á Tix.is

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].

×

Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.