Skoðun

Upp­lifum ævin­týrin saman

Kolbrún Pálsdóttir skrifar

Síminn og önnur snjalltæki eru orðin stór hluti af lífi okkar, enda til ýmissa hluta nytsamleg tæki. Það er ekkert leyndarmál að mörg erum við orðin háð snjalltækjunum okkar, bæði til vinnu og til afþreyingar. Okkur hættir til að heyra ekki þegar við okkur er talað og sjá ekki það sem er í kringum okkar. Og á hverjum bitnar það? Jú, okkar nánustu fjölskyldumeðlimum sem berjast um athygli við þetta litla tæki sem við störum á tímunum saman. 

En þegar nánasta fjölskylda samanstendur af börnum? Jafnvel kornabörnum? Gæti verið að símarnir séu farnir að hafa áhrif á tengslamyndun foreldra og barna? Um það hafa verið gerðar rannsóknir og svarið er já. Því miður. Og það er grafalvarlegt mál því eins og við öll vitum þá þurfa börn meira en mat, föt og nýja bleyju. Þau þurfa umhyggju, athygli, augnsamband og snertingu til að ná að þroskast tilfinningalega og félagslega. 

Eru þá snjallsímar verkfæri skrattans, skaðvaldar alls og ógn við samfélagið? Nei, það vil ég ekki meina. Enda þótt símar og öppin í þeim geti verið tímaþjófar þá geta þeir líka verið tímasparandi og létt okkur lífið á margan hátt. Við þurfum bara að vera meðvituð um að við stjórnum þessum tækjum en þau ekki okkur. 

Barnaheill standa í fjórða sinn fyrir Símalausum sunnudegi núna á sunnudaginn 14. nóvember. Tilgangurinn með deginum er að vekja fólk til umhugsunar um símanotkun og áhrif hennar á tengslamyndun í fjölskyldum. Dagurinn getur líka verið ágætis byrjun á að breyta hegðun og taka frá tíma, hvort sem það er sunnudagur eða ekki, til að vera í raun til staðar fyrir sig og sína. Við hjá Barnaheillum höfum fengið töluverð viðbrögð við þessu framtaki okkar í gegnum tíðina og markverðust þóttu okkur viðbrögð barnanna. Þau tjáðu sig um að þau væru virkilega ánægð með daginn og sögðust vilja hafa hann oftar. Það segir okkur fullorðna fólkinu ýmislegt. 

Upplifum ævintýrin saman. Taktu þátt í Símalausum sunnudegi frá kl. 9 – 21 næstkomandi sunnudag. Taktu prófið inn á simalaus.is en þeir sem taka þátt og skrá sig eiga kost á að vinna fjölbreytta fjölskylduvæna vinninga. Einnig fá þátttakendur sendar nokkrar góðar hugmyndir að samverustund með ástvinum sínum á símalausum sunnudegi. 

Höfundur er verkefnastjóri kynningarmála hjá Barnaheillum – Save the Children á Íslandi




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×