Innlent

Lög­regla rann­sakar mann sem gekk ber­serks­gang á Reykja­nes­brautinni

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Maðurinn sparkaði ítrekað í glugga bílsins fyrir aftan.
Maðurinn sparkaði ítrekað í glugga bílsins fyrir aftan. Vísir

Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar atvik, sem kom upp á Reykjanesbrautinni síðdegis í gær, þar sem karlmaður steig út úr bíl sínum, gekk upp að bílnum fyrir aftan og sparkaði í bílstjórarúðuna með miklu offorsi. 

Þetta staðfestir varðstjóri hjá lögreglunni á Suðurnesjum í samtali við fréttastofu. Lögreglan rannsakar nú aðdraganda atviksins, en rannsókn er á frumstigi þar sem atvikið kom upp um klukkan fjögur í gær. Lögregla var ekki kölluð út á staðinn en fékk málið á sitt borð í gær. 

Myndband af atvikinu er nú í dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem ökumaður sést aka glannalega um Reykjanesbrautina og sveigja á milli akreina, með þeim afleiðingum að bíllinn fyrir aftan getur ekki tekið fram úr. Svo virðist einnig að bílarnir hafi ekið mjög hægt, ef dæma má af myndbandinu, áður en þeir stoppa báðir. 

Við það gengur bílstjóri fremri bílsins út, gengur upp að þeim fyrir aftan sig og sparkar ítrekað í bílstjórarúðu bílsins með miklum krafti. Heyra má þann sem tekur upp myndbandið, segja að hringja þurfi í lögregluna en bílaröð virðist hafa verið fyrir aftan bílana tvo, sem sést svo aka fram hjá. 

Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða karlmann á þrítugsaldri sem hefur verið til rannsóknar hjá lögreglu og sætt nálgunarbanni. 

Veistu meira um málið? Uppruna myndbandsins eða þekkirðu fólkið í bílnum? Vísir tekur við ábendingum á [email protected]. Fullum trúnaði heitið.


Tengdar fréttir

Búið að handtaka eltihrellinn

Karlmaður á þrítugsaldri, sem meðal annars er grunaður um frelsissviptingu og ítrekuð brot gegn nálgunarbanni, var handtekinn í dag. Hann hafði áður verið handtekinn á heimili fyrrverandi kærustu sinnar 17. mars en sleppt eftir að héraðsdómur féllst ekki á að úrskurða hann í gæsluvarðhald.

Eltihrellirinn ekki gefið sig fram við lögreglu

Karlmaður á þrítugsaldri sem grunaður er um frelsissviptingu, ítrekuð brot gegn nálgunarbanni, hótanir og eignaspjöll og var úrskurðaður í gæsluvarðhald í gær hefur ekki gefið sig fram við lögreglu.

„Við erum brotin fjölskylda og gjörbreytt“

Svala Lind Ægisdóttir er ósköp venjuleg fjölskyldukona í Reykjavík sem hefur þurft að þola linnulausar ofsóknir ókunnugs manns á þrítugsaldri í vetur. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald í gær en hefur ekki gefið sig fram við lögreglu sem leitar hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×