Albumm

ANGELIC stimplar sig harkalega inn með fyrstu útgáfu sinni

Steinar Fjeldsted skrifar
Ljósmynd: jennyrets
Ljósmynd: jennyrets

Öfga Rokksveitin ANGELIC með nýtt myndband eftir Brand Patursson

ANGELIC er nýtt íslenskt verkefni sem stimplar sig harkalega inn með fyrstu útgáfu sinni, laginu Angelic Figures. Litlar upplýsingar hafa komið fram um hljómsveitina en tónlistinni má lýsa sem blöndu af dauðarokki og harðkjarna.

Myndbandið við lagið gerði færeyski listamaðurinn Brandur Patursson sem hefur mikið fengist við glerlist, þó ekkert slíkt komi fram í myndbandinu. Lagið var tekið upp í Stúdíó Sýrlandi, hljóðblandað og pródúserað af Halldóri Á. Björnssyni í stúdíó Neptúnus og masterað af Pete Maher.

Angelic Figures mun koma út á fyrstu útgáfu ANGELIC sem verður kynnt innan tíðar.

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.