Albumm

Heitasta slúðrið í tónlistarbransanum!

Steinar Fjeldsted skrifar
Steinar Fjeldsted fer yfir allt það helsta í Íslenskri tónlist alla fimmtudaga á FM 957
Steinar Fjeldsted fer yfir allt það helsta í Íslenskri tónlist alla fimmtudaga á FM 957

Steinar Fjeldsted hjá Albumm.is fer alla fimmtudaga yfir það helsta sem er að gerast í Íslenskri tónlist í Tónlistarmínútum hjá Ósk Gunnars á FM957.

Að þessu sinni er það Botnleðja en sveitin er að hugsa sér til hreyfings. Svo er það tónlistarkonan RAKEL en hún var að senda frá sér lagið Something og er þriðji singúll af væntanlegu samstarfsverkefni þriggja ungra og upprennandi tónlistarkvenna, en auk Rakelar standa að því hin danska ZAAR og Salóme Katrín frá Ísafirði. Og að lokum er það stórsveitin Sigur Rós en fyrrum meðlimur sveitarinnar, Kjartan er gengið til liðs við sveitin afhtur. Og er víst plata í vinnslu, mjög spennandi.

Lestu frétt um Botnleðju HÉR

Lestu frétt um Rakel HÉR

Hægt er að hlusta á tónlistarmínúturHÉR. Ekki missa af Steinari Fjeldsted næsta fimmtudag í hádeginu á FM 957.

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.