Albumm

„Meðvirkni og þráhyggja réðu för“

Steinar Fjeldsted skrifar

Tónlistarkonan Dagbjört Rúriksdóttir eða DIA var að senda frá sér glænýtt lag ásamt textamyndbandi sem heitir Rauðu Flöggin.

Lagið er væntanlegt á Spotify, föstudaginn 8 apríl og ekki nóg með það heldur verður einnig hægt að nálgast lagið í karaoke útgáfu , föstudaginn 15. apríl. Lagið er samið af Dagbjört og gítarleikaranum Emil Hreiðari Björnssyni. Dagbjört samdi laglínuna og textann en Emil sæa um allt undirspil.

„Textinn í laginu er saminn um tíma í mínu lífi þar sem ég fann mig í óheilbrigðum aðstæðum. Ég hunsaði mestmegnis verndandi röddina innra með mér sem var að reyna að leiða mig í rétta átt allan þennan tíma. Röddina sem ég kalla Guð en aðrir kalla æðri mátt eða innsæi til dæmis” – segir Dagbjört.

Meðvirkni og þráhyggja réðu för þar til Dagbjört fékk nóg og leyfði Guð loks að ráða. Hún komst stuttu eftir það út úr aðstæðunum og blómstrar í dag.

Dagbjört á Instagram

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.