Skoðun

Stjórna félagsmenn Eflingu?

Óskar Steinn Gestsson skrifar

Fyrir 25 árum breyttist stéttarfélagið mitt Dagsbrún í Eflingu og í 20 ár heyrði ég hvorki né sá af því. Ég vissi ekki einu sinni hvar það var til húsa – fyrr en að Sólveig Anna Jónsdóttir vann formannskosningu árið 2018 og tók við völdum. Þegar hún fór að velta við steinum þá kom ýmislegt í ljós, til dæmis fjármálastjóri sem samdi um veisluþjónustu undir borðið við sambýlismann sinn, óeðlilega háar greiðslur til tölvufyrirtækisins Init sem var á mála hjá lífeyrissjóði félagsmanna og fleira í þeim dúr.

Þá rak Sólveig sig á að margir innan skrifstofu Eflingar höfðu engan áhuga á að starfa með henni. Fólkið á skrifstofunni hafði fengið að eiga félagið í áratugi, alveg þangað til að við félagsmenn kusum okkur formann. En skrifstofufólkið var ekki tilbúið að veita lýðræðislega kjörnum formanni völd og vann kerfisbundið gegn henni og B-listanum. Þetta gekk svo langt að einn karlkyns starfsmaður hótaði að fara heim til hennar og beita hana ofbeldi, sagðist hafa komist upp með slíkt ofbeldi áður og ætti ekki í vandræðum með að beita því aftur.

Vegna stöðugrar andstöðu og undirróðurs þá sagði Sólveig af sér sem formaður haustið 2021. Hún bauð sig svo fram að nýju til formanns og fékk endurnýjað umboð félagsmanna með hreinum meirihluta í kosningum. Því miður þá dugði það ekki til. Á aðalfundi Eflingar þann 8. apríl síðastliðinn mætti henni aftur hatur og vanvirðing. Henni var ekki óskað til hamingju og ekki var gert ráð fyrir ávarpi nýs formanns á dagskránni. Ég hef aldrei orðið vitni að jafn ógeðslegri framkomu og jafn miklu virðingaleysi gagnvart vilja okkar félagsmanna eins og þetta kvöld. Starfsfólkið ætlaði að halda stríðinu við félagsmenn áfram.

Nú standa yfir skipulagsbreytingar, breytingar sem fela í sér að úreltum og stórskringilegum ráðningarkjörum er sagt upp en allir starfsmenn hvattir til að sækja um störf að nýju. Ég sé ekkert athugavert við þessar breytingar og hvernig að þeim er staðið. Augljós vandamál hafa plagað innra starf skrifstofunnar síðan 2018 og á þeim er nauðsynlegt að taka. Starfsfólk Eflingar á að þjónusta okkur félagsmenn á þeim forsendum sem stjórn félagsins ákveður en ekki að reka eigin stefnu, hvorki í rekstrarmálum félagsins né í pólitík útávið. Til þess hafa þau einfaldlega ekki umboð.

Höfundur er félagi í Eflingu.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×