Fræg pör sem giftu sig 4. júlí Elísabet Hanna skrifar 5. júlí 2022 15:30 Dagurinn virðist vera vinsæll hjá stjörnupörum. Samsett/Getty/Axelle/Bauer-Griffin/Anthony Harvey/David Livingst Í gær var þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna, hinn 4.júlí en hann er einnig brúðkaupsdagur margra frægra para sem völdu daginn til þess að gera að sínum.
Ashton Kutcher og Mila Kunis Ashton og Mila giftu sig 4. júlí árið 2015 en höfðu þá verið vinir og á tímabili samstarfsfélagar síðan 1998. Þau náðu saman sem elskhugar á Golden Globe verðlaununum árið 2012. Í viðtali við Marc Maron sagðist Mila hafa verið í margmenni og séð myndarlegan mann og þegar hann hafi snúið sér við hafi það verið Ashton sem hún hafði ekki séð í mörg ár: „Mér fannst það skrítið að ég væri að skoða þennan gaur og þetta var einhver sem ég hafði þekkt að eilífu.“ Fyrsta kossinn áttu þau í innflutningspartýinu sem hann bauð henni í kvöldið sem þau hittust á verðlaunahátíðinni. Parið byrjaði í kjölfarið að hittast en ætluðu upphaflega bara að skemmta sér saman líkt og persónurnar þeirra í „Friends with benefits“ og „No strings attached“ en enduðu á því að verða ástfangin og eiga í dag tvö börn. Ashton og Mila kynntust við tökur á That's the 70's show áður en þau urðu ástfangin.Getty/David Livingston David og Victoria Beckham Parið gifti sig árið 1999. David deildi kveðju til Victoriu í gær ásamt klippu þar sem þau voru í viðtali hjá Ali G sem spurði hvort að hann væri hrifinn að Spice Girls, hljómsveitin sem Victoria var meðlimur í og hann svaraði: „Nei en ég er hrifinn að Posh.. Fyrir 23 árum í dag varð Posh frú Beckham, en hún verður alltaf Posh. Til hamingju með afmælið WOW 23 ár & 4 fallegir krakkar. Ég elska þig , við elskum þig öll.“ Victoria setti einnig inn kveðju til eiginmannsins ásamt mynd af þeim í miklu stuði: „Þeir segja að hann sé ekki fyndinn, þeir segja að ég brosi aldrei, þeir sögðu að það myndi ekki endast. Í dag fögnum við 23 ára hjónabandi. Davíð þú ert allt mitt, ég elska þig svo mikið!!!!“ David Beckham og Victoria Beckham eru dugleg að deila ástinni á Instagram.Getty/Stephane Cardinale - Corbis Julia Roberts og Daniel Moder Julia og Daniel fögnuðu tuttugu ára brúðkaupsafmælinu sínu í gær og setti hún inn fallega kveðju með myllumerkjum: „#Getekkihættaðbrosa og #Getekkihættaðkyssa“ Julia Roberts og Daniel Moder giftu sig fyrir tuttugu árum.Getty/Kevin Mazur Sharon og Ozzy Osbourne „2022 er sérstakt ár fyrir mig. Það markar 40 ára hjónaband með elsku Ozzy mínum. Við hittumst fyrst þegar ég var 18 ára, í yfir 52 ár höfum við verið vinir, elskendur, eiginmaður og eiginkona, afar og ömmur og sálufélagar. Alltaf við hlið hvors annars. Ég elska þig Ozzy,“ sagði Sharon í fallegri kveðju til Ozzy í gær en parið gifti sig á Hawaii árið 1982. Ozzy deildi gamalli mynd frá brúðkaupsdeginum en undir henni stóð: „40 ár síðan í dag! Til hamingju með afmælið Ástin mín.“ Ozzy Osbourne og Sharon Osbourne byrjuðu með raunveruleikaþættina The Osbournes árið 2002.Getty/Axelle/Bauer-Griffin Sara Ramirez og Ryan Debolt Sara Ramirez, úr Grey's Anatomy og And Just Like That, giftist fyrrverandi eiginmanni sínum Ryan Debolt á þessum degi en þau skildu í fyrra. Sara Ramirez sló í gegn í And Just Like That sem Che.Getty/Jamie McCarthy Tom Hardy og Charlotte Riley Parið hittist fyrst árið 2009 við tökur á sjónvarpsútgáfu af Wuthering Heights og Tom var á erfiðum stað í lífinu. Parið var trúlofað ári síðar og var trúlofað í fjögur áður áður en þau giftu sig árið 2014. Tom Hardy og Charlotte Riley giftu sig 4. júlí 2014.Getty/David M. Benett Billy Joel og Alexis Roderick Parið hefur verið saman síðan árið 2009 en giftu sig árið 2015 í óvæntri athöfn sem þau héltu í árlegum þjóðhátíðarfögnuði sínum. Þetta er fjórða hjónabandið hans og virðist ganga eins og í sögu: „13 ár saman, 3 hundar, 2 börn, 1 hjónaband og svo mikil ást. Til hamingju með 7 ára afmælið,“ sagði tónlistarmaðurinn í kveðju til Alexis í gær. Billy Joel og Alexis Joel fögnuðu sjö ára brúðkaupsafmæli í gær.Getty/John Lamparski Tina Turner og Erwin Bach Líkt og flestir hafa heyrt af átti Tina óhamingjusamt og ofbeldisfullt hjónaband með Ike Turner. Í dag eru hún hamingjusamlega gift hinum þýska Erwin sem hún giftist árið 2013 í Sviss, tuttugu og sjö árum eftir að þau kynntust. Þau hittust árið 1985 þegar Erwin var að sækja hana á flugvöllinn í þýskalandi og ferja hana á tónleika og segir Tina að það hafi verið ást við fyrstu sýn. Árið 2016 greindist Tina með nýrnakrabbamein og var það ástin hennar hann Erwin sem gaf henni eitt af sínum. „Hann sagði að hann vildi ekki aðra konu eða annað líf,“ sagði Tina um veikindin. Tina Turner og Erwin Bach upplifðu ást við fyrstu sýn, allavegana af hennar hálfu.Getty/Bertrand Rindoff Petroff Vanessa Williams og Jim Skrip Parið Vanessa, úr Desperate Housewives og Ugly Betty, og Jim hafa gift sig tvisvar sinnum. Fyrst giftu þau sig 4. júlí 2015 og í seinna skiptið var það 30. maí ári síðar. Þau kynntust í Eygyptalandi árið 2013 og voru trúlofuð ári síðar. „Hann er rómantískur og hann er frábært náungi,“ sagði Vanessa í viðtali á sínum tíma. Jim Skrip og Vanessa Williams.Getty/ Astrid Stawiarz Teddi Mellencamp og Edwin Arroyave Raunveruleikastjarnan úr Real Housewives of Beverly Hills giftist eiginmanni sínum árið 2011. Í kveðju til hans í gær sagði hún: „Til hamingju með afmælið ástin mín,13 ár saman. 11 ár gift. Við höfum átt bestu tímana og erfiðustu tímana saman en það sem skiptir máli er að við höfum ást og hlátur, lærðum að hafa náð og fyrirgefningu og gerum okkar besta til að ala upp ótrúleg börn. Við erum kannski andstæður en við höfum þrautseigju og trú og tengsl sem binda okkur saman að eilífu. Skál fyrir lífi með fleiri ævintýrum, kossum, mér að nöldra í þér yfir því að vera seinn og þér að nota tannþráð í rúminu. Kýlum á þetta!“ Hann sendi henni líka fallega kveðju: „Í dag eru 11 ár giftur ástinni í lífi mínu. Þakklát fyrir allar minningarnar og upplifanirnar sem við höfum búið til saman. Ég elska hversu vel við skemmtum okkur saman og hvernig við ýtum hvort öðru áfram til að verða betri. Þegar ég geri þakklætislistann minn ertu alltaf efst á listanum því án þín og guðs væri þetta líf sem við höfum ekki mögulegt.“ Edwin Arroyave og Teddi Mellencamp eru ástfangin.Getty/JB Lacroix
Hollywood Ástin og lífið Brúðkaup Tengdar fréttir Julia Roberts og George Clooney leika fráskilið par á Bali Julia Roberts gladdi aðdáendur sína fyrr á árinu þegar hún tilkynnti þeim að ný rómantísk gamanmynd væri á leiðinni með henni og George Clooney í aðalhlutverki. Nú hefur fyrsta stiklan úr myndinni litið dagsins ljós 1. júlí 2022 21:00 Mila Kunis og Ashton Kutcher eignast sitt annað barn Parið eignaðist dreng í vikunni. 2. desember 2016 16:45 Mila Kunis og Ashton Kutcher sögð vera gift – aftur Það er í annað sinn á fjórum mánuðum sem slíkar sögur fara á kreik. 6. júlí 2015 13:54 Mest lesið Hvað eru konur í framboði að hlusta á? Lífið Hraðfréttir verða Hlaðfréttir Lífið Krakkatían: Eyðimerkur, býflugur og kjólar Lífið Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Bíó og sjónvarp Eins og að setja bensín á díselbíl Heilsa Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið Óhugnanlegt neyðarlínusímtal: „Hann var bara dáinn“ Lífið Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga rifja upp gamla takta í Draumahöllinni Bíó og sjónvarp Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? Lífið Khalid kemur út úr skápnum Lífið Fleiri fréttir Hvað eru konur í framboði að hlusta á? Krakkatían: Eyðimerkur, býflugur og kjólar Hraðfréttir verða Hlaðfréttir Khalid kemur út úr skápnum Skautasvellið opnað í tíunda sinn Sykurlausar og dísætar smákökur Flaug alla leið frá Ástralíu til að heimsækja Eiðistorg Fréttatían: Gömul mannshvörf, rukkanir og gos Vængir, bjór og lófaklapp þegar Kaninn var forsýndur Kendrick Lamar gefur út óvænta plötu „Þetta var það erfitt, að við vorum öll dofin“ Lúxusíbúð við Heiðmörk með stórbrotnu útsýni Jay Leno illa leikinn og með lepp Óhugnanlegt neyðarlínusímtal: „Hann var bara dáinn“ Hrund Gunnsteins kaupir íbúð Viktors Bjarka og Álfrúnar Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? „Þú varst að tala um Klausturmálið!“ Datt í miðri sýningu á Ellý: „Eitt lélegasta fall leikhússögunnar“ Sigraði í alþjóðlegri kokteilakeppni á Kýpur Mikill sigur að geta opnað aftur í Kringlunni Átta ár án áfengis og fíkniefna Flytja frá Bandaríkjunum eftir sigur Trump Svava Rós og Hinrik eiga von á dreng Davíð Lúther og Linda selja sælureitinn með gullfiskum „Laugarnesið hafði mjög mikil áhrif á mig í uppvexti“ Heitasti partýljósmyndari Reykjavíkur stefnir langt Dularfull tíst Dylans vekja furðu Eldræða Sölku Sólar í ráðhúsinu Flotinn og amma Andrea hlutu viðurkenningu Barnaheilla Myndir: Þungt yfir stjörnunum við jarðarför Payne Sjá meira
Julia Roberts og George Clooney leika fráskilið par á Bali Julia Roberts gladdi aðdáendur sína fyrr á árinu þegar hún tilkynnti þeim að ný rómantísk gamanmynd væri á leiðinni með henni og George Clooney í aðalhlutverki. Nú hefur fyrsta stiklan úr myndinni litið dagsins ljós 1. júlí 2022 21:00
Mila Kunis og Ashton Kutcher eignast sitt annað barn Parið eignaðist dreng í vikunni. 2. desember 2016 16:45
Mila Kunis og Ashton Kutcher sögð vera gift – aftur Það er í annað sinn á fjórum mánuðum sem slíkar sögur fara á kreik. 6. júlí 2015 13:54