Lífið

„Það er mikilvægt að halda honum gangandi“

Elísabet Hanna skrifar
Einar og Milla hlaupa í nafni Þórhöllu til styrktar Minningarsjóðs Örvars Arnarsonar.
Einar og Milla hlaupa í nafni Þórhöllu til styrktar Minningarsjóðs Örvars Arnarsonar. Skjáskot/Instagram/Samsett

Einar Þorsteinsson og Milla Ósk Magnúsdóttir ætla að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu í ár í nafni Þórhöllu Arnardóttur og Örvars Arnarsonar. Hún féll nýlega frá eftir baráttu við brjóstakrabbamein en sjálf ætlaði hún að taka þátt til að styrktar Minningarsjóðs Örvars, litla bróður síns sem lést í fallhlífarstökkslysi þegar hann reyndi að bjarga nemanda sínum.

Þórhalla snerti hjörtu margra

Þórhalla var kennari bæði í grunn- og framhaldsskóla, hóf störf við Verzlunarskóla Íslands árið 2007 og var einnig í pólitíkinni: „Hún snerti hjörtu marga og því ætlum við að hlaupa (eða labba) saman í hennar nafni í maraþoninu í ár. Ég hvet eindregið alla þá sem hana þekktu að vera með,“ segir Milla í tilkynningu á Facebook. Þar bendir hún einnig á að hægt er að heita á sjóðinn án þess að hlaupa.

Sjálf labbaði Þórhalla tíu kílómetra árið 2019 til styrktar sjóðsins, þá í miðri lyfjameðferð með fólkið sitt sér við hlið.

Styðja við sjóðinn í hennar minningu

Milla segir þau hjónin hafa hlaupið til styrktar sjóðsins síðustu ár: „Þetta höfum við gert fyrir Þórhöllu, bestu vinkonu mömmu, sem missti Örvar litla bróður sinn í hræðilegu slysi þegar hann reyndi að bjarga lífi nemanda síns. 

Sjóðurinn aðstoðar fjölskyldur við að koma látnum ástvinum heim til Íslands. Okkur langar að halda áfram að styðja við þennan mikilvæga sjóð í hennar minningu.“  

Stofnaði sjóðinn eftir slys Örvars

„Þórhalla stofnar þennan sjóð eftir að hún upplifir það hversu kostnaðarsamt og flókið það var að koma Örvari litla bróður sínum til landsins eftir að hann lést í hræðilegu slysi í Bandaríkjunum. Sjóðurinn aðstoðar að meðaltali fjórar til fimm fjölskyldur á ári þannig það er mikilvægt að halda honum gangandi,“ segir Milla um sjóðinn í samtali við Vísi.

„Þórhalla var rosalega kröftug að safna í sjóðinn, bæði með áheitum í Reykjavíkurmaraþoninu en líka með stóru golfmóti í Öndverðarnesi á hverju sumri. Það hefði því glatt hana óendanlega að sjá stórt hlaupalið samankomið í minningu þeirra beggja!“ Segir hún að lokum.

Þeir sem vilja leggja sjóðnum lið geta einnig lagt inn á reikning:

Reikningur: 526-14-403800

Kennitala: 660614-0360

Netfang: [email protected]


Tengdar fréttir

Örvar var hetja segir lögreglan

Örvar Arnarson, annar mannanna sem lést í fallhlífarstökkslysi á Flórída á laugardag, gerði allt sem hann gat til að bjarga Andra Má Þórðarsyni, sem einnig lést. Þetta sýnir upptaka úr myndavél á hjálmi Örvars. „Hann var hetja. Hann dó hetja,“ segir William Lindsey, fulltrúi lögreglustjórans í Paco-sýslu í Flórída.

Mennirnir sem létust

Mennirnir sem létust í fallhlífarslysinu í Flórída í fyrradag hétu Andri Már Þórðarson og Örvar Arnarson.

Framhaldsskólakennari vill á þing

Þórhalla Arnardóttir framhaldsskólakennari gefur kost á sér í 5.-6. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokkisins í Reykjavík sem fram fer 24. nóvember næstkomandi. Þórhalla hefur verið framhaldsskólakennari síðan 2007 og hefur einnig kennt í grunnskóla til fjölda ára. Hún er með sjúkraliðamenntun, B.ed kennarapróf, diplómu í stjórnun og fræðslu, M.paed í líffræði og diplómu í verkefnastjórnun.

Gerðu myndband til minningar um hetju og góðan vin

Hér má sjá myndskeið sem félagar fallhlífarstökkvarans Örvars Arnarsonar tóku saman fyrir vin sinn sem var annar mannanna sem lést í fallhlífarstökkslysi á Flórída 23. mars síðastliðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.