Albumm

Dansvænt, hressandi elektrónískt rapp lag með kómískum texta

Steinar Fjeldsted skrifar

Skál í Botn er fyrsta lagið sem Kafteinn Hafsteinn gefur út í samstarfi við plötusnúðinn og upptökustjórann Útikött sem var áður þekktur undir nafninu Dovi.

Skál í Botn er dansvænt, hressandi elektrónískt rapplag með kómískum texta í the art of storytelling (frásagnarlist) stíl um sjálfselskan, drykkfeldan drullusokk og ævintýri hans á skrallinu en lagið er nú komið út á helstu streymisveitum.

Kafteinninn fer ótroðnar slóðir í að kynna útgáfu lagsins en hann er með leik núna á samfélagsmiðlum þar sem hægt er að vinna veglegan verðlaunapakka líkt og sérhannaða vatnsbrúsa, tauhöldupoka ásamt tacomáltið frá Kore á Prikinu og tvo stóra ískalda til að skola máltíðinni niður með.

Fylgstu með kappanum á Instagram

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband með því að senda póst á [email protected].








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.