Lífið

Stjörnulífið: Barnalán, berjamór og Ljósanótt

Elísabet Hanna skrifar
Barnalán og Berjamó.
Barnalán og Berjamó. Skjáskot/Instagram

Haustið er mætt í allri sinni dýrð og virðast samfélagsmiðlar iða af spenningi yfir rútínu, hlýjum peysum og kertaljósi. Þó eru ekki allir tilbúnir að sleppa sumrinu og hafa haldið erlendis til þess að heilsa upp á sólina. Ljósanótt fór fram og skartaði himininn sínum fallegu norðurljósum í tilefni þess.

Ráðherrann Áslaug Arna fór á ríkisráðsfund.

LXS raunveruleikastjarnan Ástrós Trausta og Adam Helgason tilkynntu um komu væntanlegs erfingja úr fríinu á Grikklandi.

Forsætisráðherrann Katrín Jakobsdóttir er tilbúin í haustið og er mætt í berjamó.

Leikkonan Aldís Amah deilir myndum frá vikunni sinni í Seoul.

Fyrrum fótboltamaðurinn Rúrik Gíslason deildi einni svarthvítri mynd með fylgjendum sínum. Það er spurning hvort að tónlistarmaðurinn Jón Jónsson hafi eitthvað um málið að segja?

Áhrifavaldurinn Erna Kristín er í tvöföldu stuði á Spáni.

Rithöfundurinn Felix Bergsson og Baldur Þórhallsson voru alsælir með daginn sinn í Napólí eftir að hafa ferðast til Ítalíu í brúðkaup.

Söngkonan Selma Björnsdóttir skemmti sér konunglega með Önnu Björk og Nínu Dögg.

Crossfit stjarnan Katrín Tanja skálar fyrir systur sinni.

Fyrirsætan Andrea Röfn og eiginmaður hennar Arnór Ingvi Traustason kveðja Boston eftir gott ár og flytja með fjölskylduna sína til Svíþjóðar þar sem hann hefur skrifað undir samning hjá fótboltaliði. Parið tók á móti sínu öðru barni í síðasta mánuði.

Áhrifavaldurinn Elísabet Gunnarsdóttir naut sín á stefnumóti með eiginmanninum.

Söngvarinn Hreimur er alsæll með heimatónleikana á Ljósanótt og himininn var svo sannarlega með sín fallegu ljós. 

Söngvarinn Herbert Guðmundsson kom einnig fram á Ljósanótt.

Áhrifavaldurinn Móeiður Lárusdóttir og Hörður Magnússon hafa það gott í sólinni með dætrum sínum.

Þjálfarinn Sandra Björg Helgadóttir er í S-inu sínu þar sem hún stundar nám í Los Angeles.

Förðunarfræðingurinn Lilja Gísladóttir er komin á árshátíð í Berlín.

Leikkonan Íris Tanja er stolt af því að vera í FOKK OFBELDI herferðinni frá UN Women á Íslandi.

Söngvarinn Friðrik Ómar og Luke skála í Kaupmannahöfn.

Áhrifavaldurinn Camilla Rut fagnaði nýju aldursári og segir það lykta vel. Í viðtali við Vísi á dögunum deildi hún með lesendum hvað heillar hana þegar kemur að makavali.. og hvað henni finnst óheillandi: „Finnst mjög óheillandi þegar ég er ekki dýrkuð og dáð. Oj bara, næsti gjörðu svo vel!“

Söngkonan Guðrún Eyfjörð skellti í eina glæsilega sjálfu en það styttist í nýju plötuna frá henni. Platan ber heitir Tíu íslensk sönglög og er tónlistarmaðurinn Magnús Jóhann henni við hlið í verkefninu. 

Fjölmiðlakonan Ragnhildur Steinunn er tilbúin í haustið.

Grínistinn og leikarinn Villi Neto skoðar úrvalið af nammi á Íslandi.

Stofnandi Empower, Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé og Magnús Orri Marínar Schram, framkvæmdastjóri og fyrrverandi alþingismaður, fögnuðu stórafmæli og pappírsbrúðkaupi um helgina. Þau giftu sig í fyrra í lítilli sveita­kirkju, í faðmi nánustu fjöl­skyldu.

Nú var boðið til öllu stærri veislu á fallegu heimili þeirra við Njálsgötuna. Veðurblíðan í höfuðborginni bauð upp á útipartý þar sem trallað var fram á nótt. Meðal gesta voru Hanna Birna Kristjánsdóttir fyrrverandi ráðherra, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Inda Lind Karlsdóttir fjölmiðlakona, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir þingmaður Viðreisnar og Kristján Arason handboltakempa. Einhverjum nágrannanum þótti stemmningin þó teygja sig aðeins of langt inn í nóttina og tók lögreglan hús á afmælisbörnunum og bað fólk um að lækka í tónlistinni.

Leikkonurnar Hera Hilmarsdóttir og Aníta Briem skinu skært ásamt leikstjóranum Ásu Helgu Hjörleifsdóttur á frumsýningu myndarinnar Svar við bréfi Helgu sem fór fram í Háskólabíó.

Tónlistar- og sundmaðurinn Már Gunnarsson kom fram á sínum síðustu tónleikum áður en hann heldur út í nám.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Skemmtiferðaskip, barneignir og útlönd

Stjörnulífið þessa vikuna var fullt af stemningu, barneignum og utanlandsferðum. Skemmtiferðaskipið Norwegian Prima og guðmóðir þess Katy Perry stálu senunni um helgina en íslenskar stjörnur skemmtu einnig gestum skipsins. 

Stjörnulífið: Ítalskur draumur, sveitabrúðkaup og lúxus

Ástin leyndi sér ekki í stjörnulífinu þar sem brúðkaup voru um víðan völl, meðal annars á Ítalíu og í sveitinni. Svavar Örn og Daníel Örn gengu í það heilaga eftir nítján ára samband og Jóhanna Guðrún og Ólafur Friðrik deildu kossi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.