Innlent

Lögregla fann manninn

Atli Ísleifsson skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskaði í dag eftir því að ná tali af manni og bað fólk um að bera kennsl á hann.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskaði í dag eftir því að ná tali af manni og bað fólk um að bera kennsl á hann. Vísir/Vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum og er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000.

Uppfært: Maðurinn er fundinn. Myndin hefur verið fjarlægð.

Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að ef einhver þekki til mannsins, eða viti hvar hann sé að finna, eru hin sömu einnig vinsamlegast beðin um að hringja í lögregluna.

Upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected]

Þótt myndirnar séu óskýrar má ætla að þær geti gefið vísbendingar um hver maðurinn er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×