Lífið

Stjörnulífið: Bleika slaufan, RIFF og Gyða Sól

Elísabet Hanna og Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifa
Stjörnulífið er liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera síðustu daga.
Stjörnulífið er liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera síðustu daga. Samsett/Instagram

Íslendingar eru búnir að draga fram úlpurnar og fara hvað á hverju að fjárfesta í sköfum fyrir veturinn. Haustlitir einkenna samt tískuna þessa dagana og þykkar kápur, treflar og kaffibollar eru algeng sjón á Instagram. Listamenn landsins eru að dæla út nýju og spennandi efni og haustið fer vel af stað. 

Þóra Hrund Guðbrandsdóttir framkvæmdastjóri ÍMARK og svefnráðgjafinn Erla Björnsdóttir njóta saman í Grikklandi ásamt eiginmönnum sínum. Þær eiga saman skipulagsfyrirtækið MUNUM.

Jón Jónsson og Auður gáfu út nýtt lag saman í síðustu viku sem þeir sömdu á tólf dögum.

Söngkonan Jóhanna Guðrún birti mynd af sér með litlu Jóhönnu.

Raunveruleikastjarnan Ástrós Traustadóttir er að njóta haustsins.

Leikarinn Sturla Atlas deilir afmælisdegi með stjúpmóður sinni Brynhildi.

Hljómsveitin Kaleo heldur áfram tónleikaferðalagi sínu.

Fyrstu dómaraprufur fyrir Idol gengu vel. Söngkonan Birgitta Haukdal birti mynd af dómnefndinni ásamt öðrum kynni þáttanna, Sigrúnu Ósk.

Söngkonan Bríet birti einnig myndir frá prufunum og bað fólk að velja sér uppáhalds dómara.

Hljómsveitin Of Monsters and Men frumsýndu heimildarmyndina sína TÍU á RIFF um helgina. 

Raunveruleikastjarnan Sunneva Einarsdóttir deildi nokkrum góðum myndum frá síðustu dögum.

Parið Júlí Heiðar og Þórdís Björk ætla sér að taka Kviss.

Áhrifavaldurinn Erna Hrund er með lítið krútt á kantinum sem hjálpar henni að finna brosið.

25 ár eru liðin frá frumsýningu Fóstbræðra. Helga Braga deildi gamalli blaðagrein að þessu tilefni.

Lína Birgitta sýndi nýjustu línuna af íþróttavörumerki sínu Define the Line á viðburði í tengslum við tískuvikuna í París um helgina. Gummi Kíró mætti auðvitað á fremsta bekk. Með þeim í parís voru líka Sólrún Diego og Frans eiginmaður hennar.

Áslaug Arna keppist við titilinn uppáhalds frænkan og mætti sem Elsa í Frozen í barnaafmæli.

Ofurhlauparinn Snorri Björns keppti í Nice 50k hlaupinu. Þrír Íslendingar náðu í topp tíu í hlaupinu.

Leikkonan Kristín Pétursdóttir auglýsti verkefnið Konur eru konum bestar.

Söngvarinn Aron Can var búinn að láta sig dreyma um að vera ber að ofan á fimm stjörnu.

Áhrifavaldurinn Helgi Ómarsson vaknaði fyrir nokkrum vikum og tók þá ákvörðun um að panta sér flug. Núna er hann staddur í Bangkok og segir það vera himnaríki á jörðu.

Maya Einars skemmti sér vel í árlega kvennaboðinu Gala De Hattos.

Fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir er ánægð með KEKB bolinn í ár.

Söngkonan Svala Björgvinsdóttir var að spila um helgina.

Söngkonan Selma Björnsdóttir var með glæsilega dansara með sér um helgina.

Álfheiður Marta leikstýrði auglýsingunni fyrir Bleiku slaufuna í ár.

Camilla Rut eigandi Camy Collections og Aníta Rán Guðnýjardóttir eigandi Sassy fóru í ferðalag um helgina og opnuðu Pop-Up verslun á Egilsstöðum. 

Skemmtikrafturinn Eva Ruza hélt uppi fjörinu í Fjallabyggð.

Söngkonan Sólborg Guðbrandsdóttir segir Ágúst Óla vera það besta sem hefur komið fyrir sig.

Ragnar Jónsson og Katrín Jakobsdóttir kynntu væntanlega bók sína í Bretlandi. Bókin Reykjavík kemur út þar 17. ágúst á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.