Innlent

Stunginn til bana á Ólafsfirði í nótt

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá vettvangi á Ólafsfirði í dag.
Frá vettvangi á Ólafsfirði í dag. Vísir

Karlmaður var stunginn til bana í húsi á Ólafsfirði í nótt. Fjórir voru handteknir vegna málsins og hafa þeir allir réttarstöðu sakbornings á fyrstu stigum málsins. Enginn er eftirlýstur vegna málsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu er hinn látni íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri búsettur á Ólafsfirði.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að óskað hafi verið eftir aðstoð að húsi á Ólafsfirði klukkan 02:34 í nótt. Þar hefði maður verið stunginn með eggvopni. Lögreglumenn frá Akureyri hafi þegar haldið á staðinn. Jafnframt voru lögreglumenn á bakvakt á Tröllaskaga ræstir út. Þá voru tveir sérsveitarmenn ræstir út frá Akureyri.

„Þegar fyrstu lögreglumenn komu á vettvang, voru endurlífgunartilraunir hafnar á karlmanni, sem var með áverka. Læknir og sjúkraflutningamenn komu einnig á vettvang en endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og var maðurinn úrskurðaður látinn á vettvangi,“ segir í tilkynningu lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Fjórir aðilar voru handteknir í þágu rannsóknar málsins og hafa þeir allir réttarstöðu sakborninga á fyrstu stigum málsins og meðan aðkoma þeirra að málinu er rannsökuð. Lögregla segir að enginn sé eftirlýstur vegna málsins.


Veistu meira um málið? Vísir tekur við öllum ábendingum á [email protected]. Fullum trúnaði er heitið.


Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Norðurlandi eystra, sem nýtur aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

„Rannsókn málsins er á algjöru frumstigi og mikil vinna lögreglu framundan. Vegna rannsóknarhagsmuna er því ekki hægt að veita frekari upplýsingar um það að svo komnu. Ákvörðun um hvort farið verður fram á gæsluvarðhald yfir einhverjum sakborninganna verður tekin seinna í dag.“

Ekki kemur fram í tilkynningu á hvaða aldri hinn látni sé. 

Arnfríður Gígja Gunnarsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, vildi ekki upplýsa um aldur hins látna í samtali við fréttastofu. Lögreglan hefði engu að bæta við það sem fram kæmi í tilkynningunni.

Tilkynninguna í heild má sjá að neðan.


Klukkan 02:34 var óskað eftir lögregluaðstoð að húsi í Ólafsfirði þar sem maður hafði verið stunginn með eggvopni. Lögreglumenn frá Akureyri héldu þegar á staðinn og lögreglumenn á bakvakt á Tröllaskaga voru ræstir út. Þá voru tveir sérsveitarmenn ræstir út frá Akureyri.

Þegar fyrstu lögreglumenn komu á vettvang, voru endurlífgunartilraunir hafnar á karlmanni, sem var með áverka. Læknir og sjúkraflutningamenn komu einnig á vettvang en endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og var maðurinn úrskurðaður látinn á vettvangi.

Fjórir aðilar voru handteknir í þágu rannsóknar málsins og njóta þeir allir réttarstöðu sakborninga á fyrstu stigum málsins og meðan aðkoma þeirra að málinu er rannsökuð. Enginn er eftirlýstur vegna þessa máls.

Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Norðurlandi eystra, sem nýtur aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Rannsókn málsins er á algjöru frumstigi og mikil vinna lögreglu framundan. Vegna rannsóknarhagsmuna er því ekki hægt að veita frekari upplýsingar um það að svo komnu.

Ákvörðun um hvort farið verður fram á gæsluvarðhald yfir einhverjum sakborninganna verður tekin seinna í dag.

Fréttin var síðast uppfærð klukkan 12:02.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×