Viðskipti innlent

Níunda hækkunin í röð: Seðla­bankinn hækkar stýri­vexti um 0,25 prósentur

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Vísir/Vilhelm

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr 5,5 prósent í 5,75 prósent. Þetta er níunda stýrivaxtahækkun Seðlabankans í röð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum. Peningastefnunefnd segir þar að vísbendingar eru um að vaxtahækkanir undanfarin misseri hafi hægt á vexti almennrar eftirspurnar og umsvifum á húsnæðismarkaði. Verðbólga mældist 9,3% í september og hefur hjaðnað um 0,6 prósentur frá ágústfundi peningastefnunefndar.


Hvernig hefur hækkun vaxta undanfarna mánuði haft áhrif á þig og þína fjölskyldu? Við viljum heyra frá þér. Sendu okkur línu á [email protected]. Fullum trúnaði er heitið.


Þar segir einnig að undirliggjandi verðbólga hafi hins vegar aukist á milli funda nefndarinnar. Þá eru vísbendingar um að verðbólguvæntingar séu farnar að lækka á ný þótt þær séu enn yfir verðbólgumarkmiði bankans.

Vefútsending með kynningu á yfirlýsingu nefndarinnar hefst klukkan 9:30 og verður hægt að fylgjast með útsendingunni hér á Vísi. Kynningin verður í höndum Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra og Rannveigar Sigurðardóttur, varaseðlabankastjóra peningastefnu.

Spenna í þjóðarbúskap hafi náð hámarki

Í yfirlýsingu nefndarinnar segir samkvæmt bráðabirgðatölum þjóðhagsreikninga hafi hagvöxtur verið 6,8% á fyrri hluta þessa árs.

„Eftirspurn á þriðja fjórðungi ársins virðist hafa verið kröftug en útlit er fyrir að heldur hægi á umsvifum eftir því sem líður á veturinn. Nýlegar vísbendingar af vinnumarkaði benda jafnframt til þess að spenna í þjóðarbúskapnum hafi náð hámarki. Þá hafa alþjóðlegar efnahagshorfur versnað og óvissa aukist sem kann að leiða til þess að hraðar dragi úr innlendri eftirspurn en áður var gert ráð fyrir.

Peningastefnunefnd mun áfram tryggja að taumhald peningastefnunnar sé nægjanlegt til að verðbólga hjaðni í markmið innan ásættanlegs tíma. Peningastefnan mun á næstunni ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga. Ákvarðanir í atvinnulífi, á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum munu skipta miklu um þróun vaxta á næstu misserum.

Vextir verða því sem hér segir:

1. Daglán 7,50%

2. Lán gegn veði til 7 daga 6,50%

3. Innlán bundin í 7 daga 5,75%

4. Viðskiptareikningar 5,50%“

Næsta ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans verður kynnt 23. nóvember næstkomandi.

Fréttin hefur verið uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×