Lífið

Á von á sínu fyrsta barni

Atli Ísleifsson skrifar
Kaley Cuoco á frumsýningu í New York í síðasta mánuði.
Kaley Cuoco á frumsýningu í New York í síðasta mánuði. Getty

Bandaríska leikkonan Kaley Cuoco á von á sínu fyrsta barni með kærasta sínum, Tom Pelphrey.

Hin 36 ára Cuoco greindi frá tíðindunum á Instagram-síðu sinni í gærkvöldi. 

Leikkonan er hvað þekktust fyrir hlutverk sitt sem Penny í þáttunum Big Bang Theory, Bridget Hennessy í þáttunum 8 Simple Rules og Cassie Bowden í þáttunum The Flight Attendant.

Cuoco greinir frá því að von sé á stúlkubarni á næsta ári.

Þau Cuoco og Pelphrey greindu frá því fyrr á árinu að þau væru par. Pelphrey er einnig leikari og hefur meðal annars gert garðinn frægan fyrir hlutverk sitt í þáttunum Ozark og Iron Fist.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.