Fjölskyldan flutt frá Eyjum og Andri Rúnar líklegast ekki með ÍBV Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. desember 2022 15:13 Andri Rúnar Bjarnason á ferðinni með ÍBV í Bestu deildinni í sumar. Vísir/Diego Framherjinn Andri Rúnar Bjarnason hefur líklega spilað sinn síðasta leik með Eyjamönnum en fjölskylda hans er flutt á höfuðborgarsvæðið.
Andri Rúnar á enn eftir eitt ár af samningi sínum en í viðtali við Fótbolta.net þá segist Andri Rúnar ætla að láta fjölskylduna ganga fyrir að þessu sinni en konan hans er að fara eignast þeirra annað barn. „Við erum að klára að skoða hvernig við ætlum að klára þetta, ÍBV og ég," sagði Andri Rúnar Bjarnason í samtali við fótbolta.net. Andri Rúnar glímdi við meiðsli í byrjun tímabils og tók nokkurn tíma að koma sér af stað. Hann endaði á því að skora 10 mörk í 25 leikjum. „Persónulega var það erfitt fyrir mig að byrja seint út af meiðslum og ná upp alvöru formi. Ég get verið sáttur við að skila tíu mörkum á þannig tímabili. Heilt yfir var þetta gott sumar þrátt fyrir erfiða byrjun," sagði Andri Rúnar í fyrrnefndu viðtali. Andri segist vera að vinna í líkamlega þættinum hjá sér og að hann ætli að koma sér í gott líkamlegt stand fyrir næsta sumar. Andri Rúnar jafnaði markametið þegar hann skoraði 19 mörk í 22 leikjum með Grindavík sumarið 2917 og fór í framhaldinu í atvinnumennsku þar sem hann lék með Helsingborg í Svíþjóð, Kaiserslautern í Þýskalandi og Esbjerg í Danmörku áður en hann kom aftur fyrir síðasta tímabil.
Besta deild karla ÍBV Mest lesið Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Fótbolti Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Fótbolti Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn Fleiri fréttir Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Sjá meira