Dagur á leið í sólina í Orlando Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. janúar 2023 11:20 Dagur Dan Þórhallsson var einn besti leikmaður Bestu deildarinnar á síðasta tímabili. vísir/hulda margrét Dagur Dan Þórhallsson er á leið til Orlando City sem leikur í MLS-deildinni í Bandaríkjunum frá Íslandsmeisturum Breiðabliks.
Greint var frá þessu í hlaðvarpinu Dr. Football og mbl.is fékk það svo staðfest að samningaviðræður milli Orlando og Breiðabliks væru á lokastigi. Dagur kom til Breiðabliks frá Fylki fyrir síðasta tímabil. Hann lék stórvel með Blikum í fyrra, í hinum ýmsu stöðum, og átti stóran þátt í að þeir urðu Íslandsmeistarar í fyrsta sinn í tólf ár. Dagur lék 25 leiki í Bestu deildinni og skoraði í þeim níu mörk. Dagur hefur leikið fjóra landsleiki, alla í vetur. Orlando endaði í 7. sæti Austurdeildar MLS á síðasta tímabili og tapaði fyrir Montréal í 1. umferð úrslitakeppninnar. Dagur verður fyrsti Íslendingurinn sem leikur með Orlando sem er níu ára gamalt félag. Þekktustu leikmenn sem hafa spilað fyrir það eru Brasilíumaðurinn Kaká og Portúgalinn Nani. Auk Breiðabliks og Fylkis hefur hinn 22 ára Dagur leikið með Keflavík, Haukum og Mjöndalen í Noregi á ferlinum.
Besta deild karla Breiðablik Bandaríski fótboltinn Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport Dagskráin í dag: Tími fyrir endurheimt Sport Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Fótbolti Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Fótbolti Fleiri fréttir Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Sjá meira