Rafíþróttir

Heimsókn í skóla: Eva leitar að Bjarna Ben í FG

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Eva Margrét Guðnadóttir kíkti á krakkana í FG.
Eva Margrét Guðnadóttir kíkti á krakkana í FG.

Önnur viðureign átta liða úrslita Framhaldsskólaleik Rafíþróttasamtaka Íslands, eða FRÍS, fór fram síðastliðinn miðvikudag þar sem MÁ og FG áttust við. Eins og síðustu ár tók Eva Margrét Guðnadóttir púlsinn á nemendum skólanna fyrir viðureignina.

Eva skellti sér í Fjölbrautaskólann í Garðabæ og vonaðist þar til að rekast á Bjarna Ben elda kjötbollur í mötuneyti skólans.

Á milli þess sem Eva tapaði í skák og leitaði að fjármálaráðherra Íslands ræddi hún einnig við liðsmenn Fjölbrautaskólans í Garðabæ sem kepptu fyrir hönd skólans í FRÍS. Án þess að uppljóstra of miklu úr myndbandinu hér fyrir neðan er þó skemmst frá því að segja að Eva rakst ekki á hæstvirtan fjármálaráðherra.

FG hafði að lokum betur gegn MÁ síðastliðinn miðvikudag og skólinn er því á leið í undanúrslit. Heimsókn Evu í MÁ má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Heimsókn í skóla: Eva leitar að Bjarna Ben í FG

Framhaldsskólaleikarnir halda svo áfram í kvöld þegar Fjölbrautaskólinn við Ármúla og Fjölbrautaskóli Suðurlands eigast við í átta liða úrslitum í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport og hér á Vísi. Bein útsending hefst klukkan 19:30.






×