Jordan selur Charlotte Hornets Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 16. júní 2023 14:36 Michael Jordan er að selja hlut sinn í Charlotte Hornets. Jacob Kupferman/Getty Images Michael Jordan, einn allra besti körfuboltamaður sögunnar, er við það að selja hlut sinn í NBA-liðinu Charlotte Hornets.
Það er körfuboltasérfræðingurinn Adrian Wojnarowski sem greinir frá tíðindunum á ESPN, en hann hefur eftir heimildarmönnum sínum að Gabe Plotkin, minnihlutaeigandi í Atlanta Hawks, og Rick Schnall, minnihlutaeigandi í Charlotte Hornets, muni kaupa hlut Jordans. Þessir sömu heimildarmenn segja að aðilarnir muni skrifa undir samning á næstu dögum. ESPN story on Michael Jordan finalizing a sale of his majority stake in the Charlotte Hornets to a group led by Gabe Plotkin and Rick Schnall: https://t.co/MvpLs5ljsa— Adrian Wojnarowski (@wojespn) June 16, 2023 Jordan hefur átt meirihluta í Charlotte Hornets síðan árið 2010 og er hann eini þeldökki meirihlutaeigandi NBA-deildarinnar. Þegar öll tilskilin leyfi hafa verið fengin munu þeir Plotkin og Schnall hins vegar taka við sem meirihlutaeigendur liðsins. Jordan mun þó áfram vera yfirmaður félagsins þar til nýliðavalinu lýkur og þegar salan er gengin í gegn mun hann enn eiga minnihluta í félaginu. Michael Jordan er eins og áður segir einn allra besti körfuboltamaður sögunnar, en á sínum leikmannaferli varð hann NBA-meistari sex sinnum og valinn verðmætasti leikmaðurinn fimm sinnum. Hann keypti meirihluta Charlotte Hornets árið 2010 fyrir 275 milljónir bandaríkjadala sem samsvarar um 37,7 milljörðum króna.
NBA Mest lesið Uppgjör: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Fótbolti „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Fótbolti Fleiri fréttir Kristinn: Við vorum geggjaðir Uppgjör: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Lögmál leiksins: „Leifur, ertu með glósur?“ Dwayne Lautier á leið í aðgerð og verður frá í 6-8 vikur Sneri aftur í landsliðið í fyrsta sinn eftir að hafa misst nýrað Kallaði dómarann tík og rúmlega það LaMelo Ball í 50-stiga klúbbinn Björgvin aftur í Breiðholtið Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Hefur Ben Simmons náð botninum? Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Aðalþjálfari Ítalíu var með hausverk og horfði ekki á seinni hálfleik Fer á mjög dimman stað þegar lið hans tapar „Fannst þeir sýna meiri hörku, sem ég átti erfitt með“ „Auðvitað söknum við okkar besta og reynslumesta manns“ Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir „Eins og þeim finnist ekkert gaman að spila körfubolta“ Mæta sitthvoru ítalska liðinu í leikjunum tveimur „Löngu kominn tími til að fara á EuroBasket“ Ævintýraleg upphafsár Kananna í körfu á Íslandi „Hvernig eigum við að ná á EM ef að landsliðsmenn okkar eru ekki í liðinu?“ Eina félagið án útlendinga: „Þurfum vettvang fyrir unga leikmenn“ „Margir með konur en eru kannski einir í útlöndum“ „Sá sem lak þessu er skíthæll“ Gafst upp á að læra frönskuna Tekst á við lífið á nýjum stað: „Svolítið óstabílt umhverfi“ LeBron James hættur á samfélagsmiðlum Fékk tæknivillu fyrir að horfa á mótherja Gerði betur en Curry, jafnaði NBA met og hermdi eftir Jordan Sjá meira