Lífið

Dolph Lund­gren genginn í það heilaga með norskum einka­­þjálfara

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Lundgren og Krokdal trúlofuðu sig árið 2020.
Lundgren og Krokdal trúlofuðu sig árið 2020. Instagram @dolphlundgren

Sænski leikarinn Dolph Lundgren, sem er einna þekktastur fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Rocky IV, hefur gengið í það heilaga með hinni 27 ára gömlu Emmu Krokdal. Þrjátíu og átta ára aldursmunur er á hjónunum. 

Slúðurblöð vestanhafs hafa greint frá tímamótunum. Þá segir að giftingin hafi farið fram á grísku eyjunni Mýkenu. 

Í maí greindi leikarinn frá því að hann hafi glímt við krabbamein síðustu átta ár og að honum hefði verið tjáð að hann ætti í mesta lagi þrjú ár eftir ólifuð. 

Lundgren á tvær dætur úr fyrrra hjónabandi með innanhússhönnuðinum Annette Qviberg. Dæturnar eru á aldri við Krokdal, 27 ára og 21 árs. 


Tengdar fréttir

Dolph Lundgren vitnar í íslenska vefsíðu

Hasarmyndaleikarinn Dolph Lundgren virðist afar sáttur við gagnrýni íslensku vefsíðunnar Filmophilia á nýjustu mynd Svíans, Universal Soldier: Day Of Reckoning.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.