Lífið

Stjörnulífið: Þjóðhátíð, Barbie útibíó og ást á Ítalíu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Liðin vika einkenndist af ferðalögum hjá stjörnum landsins.
Liðin vika einkenndist af ferðalögum hjá stjörnum landsins.

Íslensku stjörnurnar halda áfram að njóta sumarsins hvort sem það er erlendis eða úti á landi. Liðin vika einkenndist af ferðalögum á einni stærstu ferðahelgi ársins, en sumarfríum landsmanna fer senn að ljúka. Útihátíðir voru vinsælar um helgina, þá sérstaklega Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.

Þjóðhátíð í Eyjum 

Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson lét sig ekki vanta í Herjólfsdal. „Ást til allra sem trylltust í troðfullu sunnudags brekkunni,“ skrifar Palli. 

Rapparinn og plötusnúðurinn Ragga Holm skaust til Eyja á föstudeginum. 

Guðmundur Birkir Pálmason, þekktur sem Gummi kíró, lét sig ekki vanta á Þjóðhátíð í Eyjum þrátt fyrir að vera nýkominn heim frá Tenerife ásamt kærustu sinni, Línu Birgittu Sigurðardóttur athafnakonu.

 „Síðasta tene myndin svo beinustu leið í dalinn,“ skrifar Lína við mynd af sér í sólinni.

Ást á Akureyri

Elísabet Gunnarsdóttir, áhrifavaldur og tískudrottning, naut helgarinnar á Akureyri í faðmi fjölskyldunnar. „Vona að ég muni alltaf horfa svona á þig yfir kaffibollanum,“ skrifar Elísabet við mynd af sér og eiginmanninum, Gunnari Steini Jónssyni. 

Útilega um helgina

Listaparið Elín Eyþórsdóttir og Íris Tanja Flygenring fóru í útilegu um helgina ásamt börnum Írisar, tónlistarkonunni Lay Low og Elísabetu Eyþórsdóttur, systur Elínar.

Verslunarmannahelgin erlendis

Birgitta Líf Björnsdóttir, athafnakona og áhrifavaldur, naut helgarinnar í Sorrento á Ítalíu ásamt kærastanum Enoki Jónssyni.

Listaparið Júlí Heiðar Halldórsson og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir fóru í frí til Feneyja á Ítalíu þar sem þau sigldu meðal annars um síkin í gondólabát. 

Áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Sunneva Einars fagnaði 27 ára afmæli sínu á Ítalíu í gær, nánar tiltekið í bænum Forte dei Marmi. 

Fótboltaversló

Útvarpsmaðurinn Sigurður Þorri Gunnarsson, þekktur sem Siggi Gunnars, naut helgarinnar í Englandi þar sem hann fór á tvo knattspyrnuleiki með stórliðum. „Feðgar og kærasti fóru á tvo leiki um helgina,“ skrifar Siggi við mynd af sér ásamt pabba sínum og kærastanum Sigmari Inga Sigurgeirssyni.

Áslaugar erlendis

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra og Áslaug Hulda Jónsdóttir, aðstoðarmaður Áslaugar Örnu, heimsóttu Íslendingaslóðir í Winnipeg í Kanada.

Fjölskyldumynd

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, birti mynd af fjölskyldunni. „Smávægilegt bras að ná öllum á mynd,“ skrifar Hildur.

Barbie í útibíó 

Móeiður Lárusdóttir athafnakona fór á Barbie-kvikmyndina í útibíói. Móa, eins og hún er kölluð, er búsett í Grikklandi ásamt eiginmanni sínum, Herði Björgvini Magnússyni knattspyrnumanni, og dætrum þeirra.

Móa fór á Barbie kvikmyndina í útibíó.Móeiður Lárusdóttir

Hundamamma

Birna Rún Eiríksdóttir, leikkona og grínisti, birti mynd af sér og nýjasta fjölskyldumeðliminum.

Dóttirin komin með nafn

Dóttir Ró­berts Wessman, stjórn­ar­formanns og for­stjóra Al­votech, og eig­in­konu hans, Kseniu Shak­hmanova, var skírð á dögunum, Vi­vien Roberta. 

Árs brúðkaupsafmæli

Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti og eiginkona hans Jovana Schally fögnuðu eins árs brúðkaupsafmæli sínu um helgina.

„Það er ár í dag síðan ég gekk í það heilaga með besta vini mínum. Hún er ótrúleg manneskja. Það er ekki erfitt að sjá hversu góð áhrif hún hefur haft á líf mitt. Við erum gott teymi og tölum reglulega um það. Ég finn með hverjum andardrætti ástina stækka. Ég elska þig Jovana Schally,“ skrifaði tónlistarmaðurinn og  birti myndir frá deginum brúðkaupsdeginum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.