Andri og Ragnhildur á toppnum og niðurskurðurinn nálgast Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 11. ágúst 2023 17:36 Ragnhildur Kristinsdóttir leiðir í kvennaflokki. mynd/[email protected] Annar dagur Íslandsmótsins í golfi hófst í morgun og nú eru allir kylfingar farnir af stað. Ragnhildur Kristinsdóttir leiðir í kvennaflokki, en karlameginn trónir Andri Þór Björnsson á toppnum.
Konurnar hafa flestar lokið leik í dag þó enn séu nokkrar sem eiga eftir að klára síðustu holurnar. Ragnhildur Kristinsdóttir hélt uppi uppteknum hætti frá því í gær og lék hringinn á 70 höggum og er því ein á toppnum á samtals tveimur höggum undir pari. Guðrún Brá Björgvinsdóttir situr í öðru sæti á einu höggi yfir pari, en Hulda Clara Gestsdóttir, sem var í forystu eftir gærdaginn með Ragnhildi, situr í þriðja sæti á þremur höggum yfir pari ásamt nöfnunum Andreu Ýr Ásmundsdóttur og Andreu Björg Bergsdóttur. Alls komust 29 kylfingar í gegnum niðurskurðinn hjá konunum, en 19 féllu úr leik. Hjá körlunum heldur Andri Þór Björnsson toppsætinu, en karlarnir eru þó komnir styttra en konurnar. Þegar þetta er ritað hefur Andri leikið 14 holur og er samtals á átta höggum undir pari. Huðmundur Ágúst Kristjánsson hefur spilað vel í dag og er á sjö höggum undir pari í öðru sæti eftir 16 holur og í þriðja sæti eru Logi Sigurðsson og Hlynur Geir Hjartarson á sex höggum undir pari. Eins og staðan er núna er niðurskurðarlínan við 13 högg yfir pari, en alls eru 11 kylfingar á hættusvæðinu. Stöðu mótsins í rauntíma má finna á heimasíðu Golfsambands Íslands með því að smella hér.
Golf Íslandsmótið í golfi Mest lesið Launaði greiðann og gaf liðsfélaganum sigurinn Formúla 1 „Ég þarf smá útrás“ Handbolti Sjö marka fyrri hálfleikur skaut Skyttunum í annað sætið Enski boltinn Frábær byrjun Slot ekki nóg til að slá út Solskjær Enski boltinn Musiala bjargaði stigi fyrir Bayern Fótbolti Tryggvi frákastahæstur í tapi gegn gömlu félögunum Körfubolti Fallbaráttulið Nantes tók stig af meisturunum Fótbolti Óskar Hrafn opnar sig um Haugesund: Best að falla á eigið sverð Fótbolti HM í fótbolta 2034 mun fara fram um vetur Fótbolti Öruggur sigur ÍBV gegn Val Handbolti Fleiri fréttir Fór holu í höggi yfir húsið sitt Vann hæsta verðlaunafé sem golfkona hefur fengið McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Sjá meira