Logi tók ekki bara Íslandsmeistaratitilinn með sér heim Aron Guðmundsson skrifar 14. ágúst 2023 09:30 Logi með Björgvinsskálina að Íslandsmótinu loknu Mynd: GSÍ/[email protected] Logi Sigurðsson og Ragnhildur Kristinsdóttir tryggðu sér í gær Íslandsmeistaratitilinn í karla- og kvennaflokki í golfi.
Íslandsmótið fór fram við frábærar aðstæður á Urriðavelli í Garðabænum um nýliðna helgi en um er að ræða fyrstu Íslandsmeistaratitla Loga og Ragnhildar á ferlinum. Íslandsmeistaratitillinn var hins vegar ekki eini titillinn sem Logi hafði á brott með sér af Urriðavelli í gær því hann veitti Björgvinsskálinni viðtöku að móti loknu. Björgvinsskálin er veitt þeim áhugamanni sem leikur á lægsta skori í kvenna- eða karlaflokki á Íslandsmótinu í golfi ár hvert. Skálin hefur, frá árinu 2021, verið veitt til heiðurs Björgvini Þorsteinssyni, sem varð á sínum ferli Íslandsmeistari alls sex sinnum, en árið 2021 voru 50 ár liðin frá því að Björgvin varð í fyrsta sinn Íslandsmeistari í golfi. Aron Snær Júlíusson var sá fyrsti sem fékk afhenta Björgvinsskálina eftir að hann varð Íslandsmeistari árið 2021. Það féll svo í skaut Kristjáns Þórs Einarssonar, Íslandsmeistara árið 2022 að veita Björgvinsskálinni viðtöku.
Íslandsmótið í golfi Mest lesið Fann ástina í örmum skilnaðarlögfræðingsins Fótbolti Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri Handbolti Kærir föður sinn fyrir fjársvik Sport Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Handbolti Fór holu í höggi yfir húsið sitt Golf Van Nistelrooy mættur aftur í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Liverpool með fullt hús stiga á meðan Real er rjúkand rúst Fótbolti Landsliðskonurnar okkar hrifnar af IceGuys Fótbolti Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Fótbolti „Sem betur fer fór ég enn á ný í rétt horn“ Fótbolti Fleiri fréttir Fór holu í höggi yfir húsið sitt Vann hæsta verðlaunafé sem golfkona hefur fengið McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira